Iðkendur skjálfa í of kaldri innisundlaug Sigurður Mikael Jónsson skrifar 30. maí 2019 07:30 Sundgestir hafa kvartað undan hitastiginu í kennslulauginni í Mýrinni og loftræstingu. Þessar létu þó engan bilbug á sér finna. Fréttablaðið/Ernir
Skjálfandi sundkrakkar jafnt sem fullorðið fólk í vatnsleikfimi kvarta sáran undan kulda í innisundlauginni Mýrinni í Garðabæ. Guðríður Jóna Örlygsdóttir íþróttakennari sem hefur sérhæft sig í þjálfun fullorðinna einstaklinga í vatnsleikfimi, biðlar til bæjaryfirvalda að ráðast í úrbætur á lauginni því kúnnar hennar flýi nú kuldann. Yfirvöld í bænum segja að verið sé að vinna að lausn vandans með hönnun og endurnýjun á loftræstisamstæðu sundlaugarinnar. Erindi Guðríðar Jónu var lagt fram á fundi bæjarráðs Garðabæjar á þriðjudag. Þar segist hún hafa verið með starfsemi í Mýrinni frá árinu 2007 við að kenna fólki vatnsleikfimi. Fólki með hreyfiskerðingu eða minnkandi getu til þjálfunar vegna stoðkerfisverkja, gigtarsjúkdóma eða slysa. Hitastig laugar og loftræsting í húsinu hafi þó verið versnandi vandamál. Í byrjun var hún í kringum 31-31,5 gráður sem þyki mikið til þjálfunar en á móti hafi komið að loftið var frekar kalt og rakt svo það jafnaðist út. „Á síðastliðnum árum hefur laugin verið kæld töluvert, á sama tíma hefur loftræstingin ekki verið lagfærð til að koma til móts við laugarhitann og andrúmsloftið hefur farið versnandi. Mælitæki á vegg sundlaugar sýna að vatnið sé á bilinu 29,2-29,6 en með vatnsmæli ofan í laug mælist raunhiti laugarinnar núna um 28 gráður. Úr loftinu kemur svo ískaldur, rakur gustur, sem er verulega óþægilegt fyrir axlir og brjóstkassa sem standa upp úr vatninu. Það er auðvitað augljóst að þetta er ekki einungis slæmt fyrir fólk, heldur er þetta ekki gott fyrir húsnæðið sjálft, of mikill raki leiðir auðvitað til margvíslegra vandamála,“ segir Guðríður í erindi sínu. Þar kveðst hún hafa fengið þau svör að lítið sé hægt að gera. Loftræstikerfið anni ekki því sem það á að gera. Yfirmaður sunddeildar Stjörnunnar hafi einnig verið henni sammála um að úrbóta væri þörf og það fyrir löngu. „Yngstu iðkendurnir hjá sunddeildinni eru oft skjálfandi og kaldir meðan á æfingum stendur þannig að ánægjan af sundiðkun verður ekki sem skyldi. Íþróttakennarar skólanna hafa einnig lengi kvartað undan lélegum loftgæðum, raki í sundlaugarsalnum er allt of mikill og loftið þungt. Búningsklefarnir eru kaldir og óþægilegt að koma þar inn eftir veruna í sundlauginni. Þetta ástand hefur farið versnandi nú seinnipart vetrar. Aldrei fyrr hef ég heyrt jafn margar kvartanir um kulda og óþægindi og því miður hafa fjölmargir hætt í þjálfun hjá mér vegna þessara aðstæðna,“ segir Guðríður sem kveðst hafa fengið þær upplýsingar að Starfsendurhæfingin Virk, sem hún hafi átt í samstarfi við, sé farin að fækka verulega beiðnum til hennar vegna kuldans. „Ég veit að allir helstu fræðingar bæjarins á þessu sviði vita af vandamálinu og hafa gert í mörg ár. Með þessu bréfi vil ég hvetja til þess að varanlegar útbætur verði gerðar sem allra fyrst.“ Bæjarráð færir til bókar á fundi sínum svör bæjarverkfræðings sem boðar endurnýjun á búnaði.
Birtist í Fréttablaðinu Garðabær Stjórnsýsla Sundlaugar Mest lesið „Það munaði minnstu að þeir dræpu mig“ Innlent Bann gegn einkaþotum og þyrlum samþykkt Innlent Vaktin: Eldgos hafið nærri Grindavík Innlent Sjálfstæðisflokkurinn langstærstur Innlent „Er líf okkar ekki jafn mikils virði og þeirra í Reykjavík?“ Innlent Skipað í nýja Grindavíkurnefnd Innlent Gosið í dag bara smá leki úr kvikuganginum Innlent „Haugalygi að ég hafi ógnað einhverjum með byssu“ Innlent Neituðu að rýma: „Við viljum fá að vera í friði“ Innlent Ekið á gangandi vegfaranda Innlent Fleiri fréttir Skipað í nýja Grindavíkurnefnd Sjálfstæðisflokkurinn langstærstur Bann gegn einkaþotum og þyrlum samþykkt Sækja um leyfi fyrir Kvíslatunguvirkjun Annasamur sólarhringur hjá björgunarsveit Patreksfjarðar Gosið í dag bara smá leki úr kvikuganginum „Það munaði minnstu að þeir dræpu mig“ „Er líf okkar ekki jafn mikils virði og þeirra í Reykjavík?“ Hafnar ásökunum um byssuat og uppgefnir íbúar undir Steinafjalli „Haugalygi að ég hafi ógnað einhverjum með byssu“ Fordæmir atvikið í Grindavík Fara fram á að Mangione fái dauðarefsinguna Ekið á gangandi vegfaranda Beindi byssunni yfir höfuð björgunarsveitarmanns Neituðu að rýma: „Við viljum fá að vera í friði“ „Þessi staður er ákaflega óheppilegur“ Beita öllum brögðum til að minnka tjón ef hraunið nær bænum Grindvíkingur ógnaði björgunarsveitarfólki með skotvopni „Minni kraftur í þessu samanborið við fyrri gos“ Myndir: Eldgos ógnar Grindavík Snýst allt um að tryggja öryggi fólks Gos við bæjarmörkin: Aukafréttatími í hádeginu Ein af dekkstu sviðsmyndunum að raungerast Björgunarsveitarfólki ógnað við rýmingu Eldgosið séð úr lofti Vonast til að hefja störf í Grindavík strax á morgun Sterkari merki en fyrir síðustu eldgos Bein útsending: Ræða skýrslu fjármálastöðugleikanefndar Gestir vaktir og Bláa lónið rýmt í snatri Vaktin: Eldgos hafið nærri Grindavík Sjá meira