Grótta á toppinn | Draumabyrjun nýja þjálfarans hjá Leikni Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 27. júní 2019 21:15 Grótta vann nýliðaslaginn og komst þar með á topp Inkasso-deildar karla. vísir/ernir
Grótta tyllti sér á topp Inkasso-deildar karla með 0-3 sigri á Aftureldingu í nýliðaslag í Mosfellsbænum í kvöld. Grótta hefur fengið 13 stig af 15 mögulegum í síðustu fimm leikjum. Staðan var markalaus fram á 87. mínútu þegar Axel Freyr Harðarson kom Seltirningum yfir. Loic Ondo, fyrirliði Aftureldingar, skallaði í stöng á lokamínútunni en Pétur Theodór Árnason refsaði skömmu síðar. Hann bætti svo öðru marki sínu við í uppbótartíma. Pétur er markahæstur í Inkasso-deildinni með sjö mörk líkt og Þórsarinn Álvaro Montejo. Afturelding er í 10. sæti deildarinnar með níu stig, tveimur stigum frá fallsæti. Leiknir R. vann 1-3 sigur á Keflavík suður með sjó í fyrsta leiknum undir stjórn nýja þjálfarans, Sigurðar Heiðars Höskuldssonar. Hann tók við Leikni af Stefáni Gíslasyni sem er farinn til Lommel í Belgíu. Staðan var markalaus í hálfleik en í upphafi seinni hálfleiks skoraði Vuk Oskar Dimitrijevic fyrsta mark leiksins og kom Leiknismönnum yfir. Á 53. mínútu kom Sævar Atli Magnússon gestunum úr Breiðholti í 0-2 þegar hann nýtti sér slæm mistök Ísaks Óla Ólafssonar, fyrirliða Keflavíkur, og skoraði. Adolf Mtasingwa Bitegeko minnkaði muninn á 61. mínútu en aðeins fjórum mínútum síðar kom Sólon Breki Leifsson Leikni í 1-3 sem urðu lokatölur leiksins. Leiknir er í 5. sæti deildarinnar, einu sæti ofar en Keflavík. Upplýsingar um úrslit og markaskorara eru fengnar frá Fótbolta.net.
Inkasso-deildin Tengdar fréttir Stefán Gíslason hættur með Leikni og tekur við liði í Belgíu Óvænt tíðindi úr Breiðholtinu. 26. júní 2019 17:59 Stefán Gíslason verður knattspyrnustjóri Hendrickx hjá Lommel SK Belgíska félagið Lommel SK sótti sér bæði leikmann og knattspyrnustjóra til Íslands í þessum mánuði. 27. júní 2019 10:15 Mest lesið Orri og félagar duttu út með hádramatískum hætti Fótbolti Segir Müller eiga skilið góða kveðjustund Fótbolti „Verður vonandi tilbúinn fyrir síðustu leiki tímabilsins“ Enski boltinn „Ekki tími ársins til að fara inn í einhverja skel“ Körfubolti Uppgjörið: Njarðvík 84-75 Stjarnan | Njarðvík tekur foyrsuna í kaflaskiptum leik Körfubolti Sluppu með sigur og hafa haldið oftast hreinu Enski boltinn „Þetta var alveg orðið smá stressandi“ Sport Þjálfari Sveindísar segir starfi sínu lausu Fótbolti Saka sneri aftur og skoraði í sigri Skyttnanna Enski boltinn „Verðum að nýta hvert einasta tækifæri sem við fáum“ Körfubolti Fleiri fréttir Stúkan fær liðsstyrk í þremur kanónum Besta auglýsing Fram: Rúnar kann öll vafasömu trixin „Var meira fyrir að borða nutella úr krukkunni og spila tölvuleiki“ „Stærsta í þessu er ef Rúnar Már nær að spila meira“ Besta-spáin 2025: Vindur í Skagaseglin Heimsóttu Hásteinsvöll: „Það eru ekkert allir sáttir við þetta“ Vel vopnaðir tökumenn: „Djöfull er þetta góður klútur“ „Maður er pínu hræddur fyrir þeirra hönd“ Besta-spáin 2025: Að finna sér nýjan samastað í tilverunni „Gerðum gott úr þessu“ Uppgjörið: Breiðablik - KA 3-1 | Breiðablik er meistari meistaranna Herra Víkingur kvaddur: „Rosalega gott tækifæri til að hætta“ Skelfileg meiðsli Stefáns Árna: „Fóturinn var í mjög ljótri stöðu“ Frumraun Gylfa í beinni í kvöld „Mér finnst þeir geta farið í báðar áttir“ Besta-spáin 2025: Meðvindur þrátt fyrir mótbyr Sænska stórveldið keypti Ísabellu Söru Grindvíkingar sækja um í hamfarasjóð UEFA Heimi finnst aldursumræðan algjörlega galin Ný treyja KR kynnt með pompi og prakt „Þetta er veikara lið“ Besta-spáin 2025: Leiðin orðin grýttari „Mjög krefjandi tímabil framundan“ „Lærir með hverju árinu hvað maður á að hlusta á og hvað ekki“ Besta-spáin 2025: Ætla að brosa aftur í mótslok Aftur hefur KR leik í Laugardalnum Nýi markvörður KA kom snemma inn af bekknum í fyrsta leik Ísabella Sara sögð á leið til Rosengård Besta auglýsing Aftureldingar: „Þetta er enginn helvítis Pizzabær“ „Veturinn eins og best verður á kosið“ Sjá meira
Stefán Gíslason hættur með Leikni og tekur við liði í Belgíu Óvænt tíðindi úr Breiðholtinu. 26. júní 2019 17:59
Stefán Gíslason verður knattspyrnustjóri Hendrickx hjá Lommel SK Belgíska félagið Lommel SK sótti sér bæði leikmann og knattspyrnustjóra til Íslands í þessum mánuði. 27. júní 2019 10:15