Hvað höfum við gert? Nokkur orð um stefnubreytingu og einstaklingshyggju Guðmundur D. Haraldsson skrifar 25. júní 2019 15:21 Nú nýverið voru sýndir á RÚV þættirnir Hvað höfum við gert?, þættir sem fjalla um loftslagsbreytingar, neysluhyggju og ofnýtingu auðlinda. Í þessum þáttum – sem eru vel gerðir – er dregin upp dökk mynd af áhrifum neyslumenningar okkar á umhverfið, loftslagið, og á endanum okkur sjálf. Þessir þættir leiða vel í ljós að við, mannskepnan, höfum valdið ótrúlegum breytingum á umhverfi okkar – hvort sem er landslagi, auðlindum eða loftslaginu. Þættirnir leiða einnig fram hvað neysla er stór áhrifaþáttur í loftslagsbreytingum, og lögð er áhersla á að það verði að grípa til aðgerða – en hér komum við að helsta galla þessara annars ágætu þátta: Allar þær aðgerðir sem eru nefndar eru lagðar í hendur einstaklingsins, að hann verði að breyta háttum sínum hið snarasta, ellegar fari illa. Það er löngu kominn tími á að við sem samfélag tökum alvarlega þau áhrif sem við höfum á umhverfi okkar. Og þessir þættir tengja vel hegðun okkar við þessi áhrif með umfjöllun um iðnbyltingarnar, bruna kolefniseldsneytis, og losun gróðurhúsalofttegunda. Sjónræn nálgun er nýtt til hins ítrasta, sem er heppilegasta formið fyrir okkur mennina, og þá er talað við vísindafólk, fræðimenn, stjórnmálamenn og aðgerðarsinna úr ýmsum áttum, en einnig fólk sem rekur fyrirtæki. Umfjöllunin er góð og vonandi að hún vekji fólk til umhugsunar. Meginmarkmið þáttanna, sýnist mér, er að vekja fólk til umhugsunar og fá fólk þannig til að breyta hegðun sinni. Þannig er ítrekað talað um í þáttunum um að fólk vonandi taki sig til og hegði sér öðruvísi eftir að útsendingu þáttanna lýkur, að nokkurs konar hugarfarsbreyting heildarinnar og breyting á inngrónu hegðunarmynstri eigi sér stað á kvöldstund eða tveimur. Þetta er kannski – og líklega – ekki það sem þáttagerðarmennirnir höfðu í huga, en þetta er samt útkoman þegar á heildina er litið. Á þessu eru þó undantekningar, eins og þegar félagssálfræðingurinn sem rætt er við í þáttunum við leggur áherslu á að það verði að eiga sér stað breyting á umbunarkerfum, auglýsingaheiminum, og markviss hvatning til endurnýtingar og -notkunar. Það er nefnilega sem er, að það eru litlar sem engar líkur til að hugarfarsbreytingin ein og sér breyti hegðun fjöldans, því miður. Ég vil hér skjóta inn litlu dæmi um hvernig hugarfar og þekking, eitt og sér, hefur takmörkuð áhrif á hegðun fólks. Það hefur nú verið vitað í áratugi að reykingar og önnur notkun tóbaks hefur alvarleg áhrif á heilsu fólks, en þetta staðfesta hundruðir rannsókna, gerðar yfir áratugalangt tímabil. Engu að síður eru enn þúsundir sem reykja á Íslandi, þótt þeim hafi farið fækkandi, lukkulega. Reykingamönnum hefur að öllum líkindum fækkað fyrir tilstilli hás verðs á tóbaki og vegna kerfisbundins áróðurs sem hefur verið beint gegn reykingum – hvort tveggja er stefna ríkisvaldsins. Þegar það er ekki „töff“ að reykja, og þar að auki dýrt, byrja færri að reykja – fólk fær einfaldlega takmarkaða, ef nokkra, umbun úr umhverfinu til að byrja að reykja eða halda því áfram. Nú er neysla á ýmsum varningi svolítið af öðru tagi en reykingar, því reykingar eru mjög svo ávanabindandi, en meginskilaboðin eru þó þessi: Það er umbunin og hvatarnir sem skipta miklu máli, sjálf menningin sem við þrífumst í, hún skiptir svo miklu máli, það eru þessir þættir sem hafa svo mikil áhrif á hegðun okkar í daglegu lífi, fremur en bein þekking á afleiðingum þess sem við erum að gera okkur og umhverfi okkar. Rétt eins og færri byrja að reykja nú en var fyrir hálfri öld, fyrir tilstilli umbunar, menningar og áróðurs, getum við nýtt sams konar aðferðir til að draga úr neyslu og fá fólk til að breyta hegðun sinni. Upplýsingar til fólks vissulega hjálpa, en þær þjóna líka þeim tilgangi að réttlæta aðgerðir og áróður sem beint er gegn skaðlegri hegðun fólks og samfélagsins í heild sinni. Það nákvæmlega sama á auðvitað um fyrirtækin – þau þurfa að breytast, og aðgerðirnar verða að beinast gegn þeim líka, enda eru þau stór þátttakandi í hagkerfinu. Eina vitræna leiðin til að koma í veg fyrir miklar og óafturkræfar breytingar á loftslaginu og náttúrunni, breytingar sem munu hafa mjög óheilavænleg áhrif á okkur öll sem á þessari jörð búum, er að breyta hegðun fjöldans. Slíkri hegðun verður aðeins breytt með óspennandi aðgerðum eins og breytingum á skattkerfum, takmörkun á auglýsingum, höftum á því hvernig vörum er stillt fram, og áróðri. Engum finnst svona lagað áhugavert, allir vilja eitthvað „nútímalegt“ og „sniðugt“ til að bjarga okkur frá þessari óheillavænlegu þróun sem er í aðsigi – helst „app“ – en raunin er sú að við hvorki þurfum né höfum nokkuð slíkt í höndunum eins og er, og því eðlilegt að nýta það sem við vitum að virkar. Og við vitum að öflug stefnubreyting stjórnvalda virkar. Máttur stefnubreytingar stjórnvalda er sést best á því að þegar vörugjöld voru felld niður á raftækjum, stórjókst innflutningur þeirra. Þegar loks var komið að síðasta þætti Hvað höfum við gert? átti ég von á að sjá eitthvað um að stjórnvöld yrðu að taka í taumana og innleiða gjörbreyta stefnu, eitthvað sem hönd væri á festandi. Mér til allnokkurra vonbrigða var ekkert slíkt í þessum síðasta þætti – bara upprifjun á því sem áður hafði verið fjallað um. Ég er samt ekkert hissa. Við öll, sem samfélag, lítum á öll vandamál sem eitthvað sem einstaklingurinn verður að bregðast við, fremur en heildin – jafnvel þótt það sé algerlega ljóst að loftslagsbreytingarnar og ofnýting náttúruauðlinda séu orsakaðar af heildinni og því vandamál sem heildin verður að takast á við. Þetta er í raun og veru kjarni einstaklingshyggju af harðasta tagi: Öll vandamál eiga sér rót í einstaklingum og það er hans að taka þeim – ekki okkar hinna. Við erum sem samfélag, svo gegnsýrð af einstaklingshyggju, að við komum ekki auga á hvernig við eigum eiginlega að komast í veg fyrir þessi umhverfisvandamál sem að okkur steðja – en þetta nær líka til kvikmyndagerðarmannanna, enda bara mannlegir eins og við hin. Á engan hátt er hægt að áfellast þá, enda þátttakendur í samfélagi eins og við öll – og eflaust eru þeir líka undir þrýstingi um að vera ekki um of pólítískir í störfum sínum. Það er hins vegar hægt að grípa til aðgerða sem eru raunhæfar, og um þær verður fjallað í næsta pistli.Höfundur er stjórnarmaður í Öldu, félagi um sjálfbærni og lýðræði. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Guðmundur D. Haraldsson Loftslagsmál Umhverfismál Mest lesið Falsfréttastjóri RÚV dýpkar holuna sína Einar Steingrímsson Skoðun Ákall um breytingar Gissur Freyr Gissurarson Skoðun Ekki er allt sem sýnist Ólafur Helgi Marteinsson Skoðun Vanfjármögnun vísindanna Magnús Hallsson,Styrmir Hallsson Skoðun Skóli án aðgreiningar: Hentar ýktasta mynd skólastefnunnar öllum börnum? Jóna Sigríður Valbergsdóttir Skoðun Laun kvenna og karla Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,Steinunn Bragadóttir Skoðun Verkin sem ríkisstjórnin verður dæmd af Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun Hrynur sjávarútvegur? Stefán Ólafsson Skoðun Það tók 94 daga að gera það sem beðið hefur verið eftir í rúmlega 40 ár Þórður Snær Júlíusson Skoðun Hvernig talar maður við tölvur og hafa vélar rökhugsun? Henning Arnór Úlfarsson Skoðun Skoðun Skoðun Ekki er allt sem sýnist Ólafur Helgi Marteinsson skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar: Hentar ýktasta mynd skólastefnunnar öllum börnum? Jóna Sigríður Valbergsdóttir skrifar Skoðun Vilji til að rjúfa kyrrstöðu í húsnæðiskreppunni Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Grænt ál frá Íslandi er mikilvægt fyrir sjálfstæða Evrópu Guðríður Eldey Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar barn óttast önnur börn Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Falsfréttastjóri RÚV dýpkar holuna sína Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Ákall um breytingar Gissur Freyr Gissurarson skrifar Skoðun Veit sem sagt Grímur betur? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig talar maður við tölvur og hafa vélar rökhugsun? Henning Arnór Úlfarsson skrifar Skoðun Laun kvenna og karla Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,Steinunn Bragadóttir skrifar Skoðun Verkin sem ríkisstjórnin verður dæmd af Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Open Letter to new HÍ Rector re Disability Support Hópur starfsfólks og nemenda við HÍ skrifar Skoðun Vanfjármögnun vísindanna Magnús Hallsson,Styrmir Hallsson skrifar Skoðun Kárhóll og Kína: Þegar vísindi verða pólitísk tól Davíð Michelsen skrifar Skoðun Mál Ásthildar Lóu Þórsdóttur – Hvernig manneskjur viljum við vera? Hulda Steingrímsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórn gegn fjölskyldusameiningum? Þorbjörg Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Lýðræðið deyr í myrkrinu Heiðar Örn Sigurfinnsson skrifar Skoðun Færni til framtíðar Álfheiður Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ofbeldi Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Lestu Gaza Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir skrifar Skoðun Ný fjármálaáætlun - tækifæri til að efna loforðin um bætt geðheilbrigði Sandra B. Franks skrifar Skoðun 10 ár og bull í lokin Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Opið bréf til atvinnuvegaráðherra: 48 daga, nei takk Gísli Gunnar Marteinsson skrifar Skoðun Á nú að opinbera það að ég veit í rauninni ekki neitt? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar Skoðun Háskóli Höfuðborgarinnar, ekki Íslands Arent Orri Claessen,Gunnar Ásgrímsson skrifar Skoðun Hrynur sjávarútvegur? Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Iftar, agape og Eid: Kristnir og múslimar við sama borð Hilal Kücükakin Kizilkaya,Sigurvin Lárus Jónsson skrifar Skoðun Bætt skipulag fyrir stúdenta Aðalsteinn Haukur Sverrisson ,Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Frá sögulegum minjum til sviðsettrar upplifunar: Um sanngildi og Disneyvæðingu Sólheimasands Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Staðan á húsnæðismarkaði: Offramboð af röngu meðaltali Egill Lúðvíksson skrifar Sjá meira
Skóli án aðgreiningar: Hentar ýktasta mynd skólastefnunnar öllum börnum? Jóna Sigríður Valbergsdóttir Skoðun
Það tók 94 daga að gera það sem beðið hefur verið eftir í rúmlega 40 ár Þórður Snær Júlíusson Skoðun
Skoðun Skóli án aðgreiningar: Hentar ýktasta mynd skólastefnunnar öllum börnum? Jóna Sigríður Valbergsdóttir skrifar
Skoðun Grænt ál frá Íslandi er mikilvægt fyrir sjálfstæða Evrópu Guðríður Eldey Arnardóttir skrifar
Skoðun Open Letter to new HÍ Rector re Disability Support Hópur starfsfólks og nemenda við HÍ skrifar
Skoðun Mál Ásthildar Lóu Þórsdóttur – Hvernig manneskjur viljum við vera? Hulda Steingrímsdóttir skrifar
Skoðun Ný fjármálaáætlun - tækifæri til að efna loforðin um bætt geðheilbrigði Sandra B. Franks skrifar
Skoðun Iftar, agape og Eid: Kristnir og múslimar við sama borð Hilal Kücükakin Kizilkaya,Sigurvin Lárus Jónsson skrifar
Skoðun Frá sögulegum minjum til sviðsettrar upplifunar: Um sanngildi og Disneyvæðingu Sólheimasands Guðmundur Björnsson skrifar
Skóli án aðgreiningar: Hentar ýktasta mynd skólastefnunnar öllum börnum? Jóna Sigríður Valbergsdóttir Skoðun
Það tók 94 daga að gera það sem beðið hefur verið eftir í rúmlega 40 ár Þórður Snær Júlíusson Skoðun