Brasilíumenn enduðu enn einn titildraum Messi í nótt Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. júlí 2019 06:00 Gabriel Jesus og Roberto Firmino fagna fyrra markið leiksins. Getty/Pedro Vilela Brasilía er komið áfram í úrslitaleik Suðurameríkukeppni landsliða í knattspyrnu, Copa America, eftir 2-0 sigur á erkifjendum sínum í Argentínu í undanúrslitaleik í Belo Horizonte í nótt. Leikmenn Manchester City og Liverpool sáu um mörkin í leiknum. Gabriel Jesus skoraði fyrra markið í fyrri hálfeik en Roberto Firmino það síðara í seinni hálfleiknum. Lionel Messi þarf því að bíða enn lengur eftir titli með argentínska landsliðinu en hann hefur aldrei unnið titil með aðalliði Argentínumanna þrátt fyrir að hafa unnið yfir þrjátíu titla með Barcelona. Leikmenn liðanna eru engir vinir og það sást vel í nótt enda var oft stutt í leiðindin. Sergio Aguero og Lionel Messi voru báðir mjög nálægt því að skora í leiknum en skot þeirra enduðu í stöng og slá. Argentínumenn hafa ekki unnið Brasilíu í landsleik síðan árið 2005. Gabriel Jesus kom Brasilíu í 1-0 á 19. mínútu eftir stoðsendingu frá Roberto Firmino og Jesus launaði síðan greiðann með því að leggja upp seinna markið fyrir Firmino á 81. mínútu. Brasilíska landsliðið hefur enn ekki fengið á sig mark í keppninni og mætir nú annaðhvort Síle eða Perú í úrslitaleiknum á Maracana leikvanginum í Ríó. Seinni undanúrslitaleikurinn er á dagskrá í nótt. Copa América
Leik lokið: Holland - Ísland 27-25 | Tveggja marka tap niðurstaðan eftir flotta frammistöðu gegn erfiðum andstæðingi Handbolti
Leik lokið: Holland - Ísland 27-25 | Tveggja marka tap niðurstaðan eftir flotta frammistöðu gegn erfiðum andstæðingi Handbolti