Með því að samþykkja þjónustuskilmálana gefur fólk forritinu heimild til að nálgast myndir og myndavél símans, nota andlitsmyndirnar sjálfar og nöfn einstaklinganna á hvern þann hátt sem forritið, eða heldur eigendur þess, óska eins lengi og þeir telja upplýsingarnar nothæfar.
Gagnadreifing snjallforrita ekki ný af nálinni
FaceApp er í eigu rússneska fyrirtækisins Wireless Labs og kann það að útskýra áhyggjuraddir sem hafa hljómað, enda er það okkur á vesturlöndum innrætt að hræðast allt sem kemur frá Rússlandi eða Kína. Chuck Schumer, leiðtogi Demókrata í öldungadeild Bandaríkjaþings lýsti yfir áhyggjum sínum og krafði bandarísku Alríkislögregluna um að rannsaka forritið, enda gætu upplýsingarnar verið notaðar af rússnesku leyniþjónustunni, kysi FaceApp að selja andlitin þangað.BIG: Share if you used #FaceApp:
— Chuck Schumer (@SenSchumer) July 18, 2019
The @FBI & @FTC must look into the national security & privacy risks now
Because millions of Americans have used it
It's owned by a Russia-based company
And users are required to provide full, irrevocable access to their personal photos & data pic.twitter.com/cejLLwBQcr
Snemma á síðasta ári opinberaðist hvernig fyrirtækið Cambridge Analytica hafði notað upplýsingar um notendur Facebook í aðdraganda forsetakosninganna árið 2016. Farnar voru krókarleiðir til að kaupa upplýsingarnar af Facebokk undir því yfirskini að þær yrðu notaðar í rannsóknartilgangi.
Til að breyta myndunum eru þær sendar til vefþjóna út í heimi, sem flestir eru á vegum Amazon í Bandaríkjunum. Þegar myndunum hefur verið breytt eru þær sendar aftur í símana. Þessum myndum er, samkvæmt FaceApp, eytt af vefþjónunum innan tveggja sólarhringa eftir að þær berast en eftir verða upplýsingar sem hægt er að nota í þjálfun gervigreindar.
Regluleg tiltekt í snjalltækjum mikilvæg
Skaðleg áhrif gagnasöfnunarinnar er alls óvís eins og Árni Jón Eggertsson komst að orði í Bítinu á Bylgjunni í morgun. „Ég veit það ekki [hvort þetta geti verið skaðlegt fyrir einstaklinga], þú ert væntanlega með Snapchat á símanum þínum og Instagram, Messenger, WhatsApp og kannski Facebook og þegar þú setur upp öll þessi forrit leyfirðu þeim öllum að hafa aðgang að nánast öllu því sem þú geymir í tækinu þínu.“„Það eru kannski allt aðrir aðilar sem eru búnir að hafa miklu lengri aðgang að öllum myndunum þínum en þig nokkurn tíma grunar,“ bætti hann við.
Hann sagði mikilvægt að fólk tæki reglulega til í símunum sínum og eyddi þeim forritum sem væru ekki lengur í notkun. Forritin gætu fengið miklu meiri aðgang en notandi hafi upphaflega samþykkt þegar það uppfærði sig.
Forritið hefur einnig leyfi til að nota myndirnar í auglýsingaskini fyrir sjálft sig líkt og önnur forrit, til dæmis Twitter.
Forritin Snapchat og Instagram nota svipaða gervigreind og FaceApp notar til að breyta andlitum notenda sinna t.d. til að setja kattareyru og veiðihár á myndirnar. Þjónustuskilmálar þeirra forrita eru alls ekki ósvipaðir skilmálum FaceApp.