Hópurinn stillti sér upp fyrir framan kjötkæla í versluninni með svart límband yfir munninum og skilti sem vöktu athygli á þjáningum dýra í matvælaiðnaði. Þá spiluðu þau hljóðbúta sem tekin eru upp í sláturhúsum og heyra mátti sársaukafull hljóð dýranna óma um ganga verslunarinnar.
Sjá einnig: Kölluðu til lögreglu vegna grænkera sem spiluðu dýrahljóð í matvöruverslun
Mótmælin fóru friðsamlega fram bæði í dag og í gær en þó var kallað til lögreglu við mótmælin í Hagkaup í gær. Lögreglan hafði ekki afskipti af fólkinu þar sem það yfirgaf verslunina fljótlega.

Flestir vita hvaðan dýraafurðirnar koma
Vigdís Þórðardóttir, ein þeirra sem tók þátt í mótmælunum, segist vera sannfærð um að mótmælin skili árangri. Það eitt að vekja athygli á málstaðnum vekji fólk til umhugsunar enda þarf oft lítið til.„Flestir eru þannig að þeir mæta bara út í stórmarkaði, eins og ég gerði, og kaupa sína vöru án þess að hugsa og fara heim og elda hana og pæla ekkert meira þó þau viti hvaðan þetta kemur,“ segir Vigdís.
Vigdís segir söguna sýna að slíkar truflanir hafa töluverð áhrif þegar kemur að réttindabaráttu þeirra sem minna mega sín í samfélaginu. Hún segir mótmælin vera til þess fallin að skapa umfjöllun og aðspurð hvort hún telji slíkar aðgerðir bera árangur er svarið einfalt:
„Við erum í kvöldfréttunum svo ég myndi segja það.“