Hnefaleikakappinn Tyson Fury snýr aftur í hringinn í september í Las Vegas. Þar mætir hann væntanlega Charles Martin, fyrrverandi heimsmeistara í þungavigt.
Fury sigraði Tom Schwarz í tveimur lotum í Las Vegas í síðasta mánuði. Það var fyrsti bardagi Furys eftir jafnteflið umdeilda við Deontay Wilder í desember á síðasta ári.
Fury og Wilder mætast öðru sinni 22. febrúar á næsta ári, líklega í Las Vegas.
Áðurnefndur Charles Martin var heimsmeistari í þungavigt í 85 daga í upphafi árs 2016. Aðeins einn, Tony Tucker, hefur verið heimsmeistari í þungavigt í styttri tíma en Martin.
Hann tapaði heimsmeistaratitlinum þegar hann laut í lægra haldi fyrir Anthony Joshua í apríl 2016. Það var hans fyrsta tap á ferlinum. Síðan þá hefur Martin unnið fjóra bardaga og tapað einum.
Fury hefur unnið alla bardaga sína á ferlinum fyrir utan bardagann gegn Wilder.
