Skoðun

Skellt í lás

Ólöf Skaftadóttir skrifar
Hrina lokana fyrirtækja í borginni hefur riðið yfir undanfarna daga. Undanfarnar örfáar vikur hafa fjögur veitingahús á Hverfisgötu hætt rekstri; Dill, Systir, Mikkeller & Friends og Essensia og í gær læsti hin rótgróna sælkeraverslun Ostabúðin á Skólavörðustíg dyrum sínum. Reykjavík er margfalt fátækari fyrir vikið.

Það verður seint sagt um borgina að hún sé vinveitt atvinnurekstri. Frekar er hún sér á báti borið saman við önnur sveitarfélög. Til að mynda með innheimtu fasteignaskatta. Tekjur borgarsjóðs af skattinum jukust um einn og hálfan milljarð frá 2018 til 2019. Borgin heldur áfram hæstu álagningu fasteignaskatts árið 2019, öfugt við mörg nágrannasveitarfélög.

Blómlegur rekstur verslana, fyrirtækja og veitingastaða í borg er ein forsenda þess að þar sé eftirsóknarvert að búa. Hin mikla skattbyrði vegur sífellt þyngra í rekstri heimila og fyrirtækja. Óhjákvæmilega hefur þróunin leitt til hærra leiguverðs.

Vitaskuld er fasteignaskattur ekki eina ástæða þess að fyrirtæki eiga erfitt uppdráttar í Reykjavík. Að fullyrða slíkt er einföldun. Hlutverk borgarinnar hlýtur þó að snúast að minnsta kosti öðrum þræði um að búa þannig um hnútana að hér geti blómlegur rekstur þrifist.

Liður í því væri að lækka fasteignaskatta og hlusta eftir gagnrýni sem fyrirtækjaeigendur í borginni hafa uppi. Svifasein og þung stjórnsýsla er þar á meðal. Skemmst er að minnast þess þegar eigendur veitingastaðar í Vesturbænum biðu í 724 daga eftir vínveitingaleyfi. Forsendur rekstrarins voru brostnar þegar leyfið var loksins veitt og staðnum lokað.

Dæmi um skeytingarleysi efsta lags stjórnenda borgarinnar er svar aðstoðarmanns borgarstjóra við réttmætum kvörtunum rekstraraðila við Hverfisgötu undanfarna daga. Gatan hefur verið uppgrafin og undirlögð af framkvæmdum síðan í vor. Borgin gefur lítið upp um áætluð verklok, hafði lítið samráð og skellti raunar framkvæmdum framan í kaupmenn og veitingahúsaeigendur sem fá enga ívilnun á móti. Eigendur fyrirtækja á svæðinu hafa kvartað yfir því að framkvæmdir gangi of hægt og hafi gríðarleg áhrif á aðgengi viðskiptavina að búðum og veitingahúsum á reitnum. Einn eigenda Dills lýsti uppgreftri Hverfisgötunnar sem „martröð“ í uppgjörsviðtali eftir lokun veitingastaðarins í síðustu viku.

Aðstoðarmaður borgarstjóra gefur lítið fyrir þetta. „Það að Dill fari á hausinn hefur ekkert að gera með fram­kvæmdir á Hverfis­götu. Dill missti Michelin stjörnu, held að það hafi haft mun meira að segja en sundur­grafin gata á stað þar sem gengið er inn af Ingólfs­stræti,“ sagði aðstoðarmaðurinn á Facebook.

Vitaskuld þarf að gera upp götur í borginni. Það er hins vegar á ábyrgð borgarinnar að gefa nægjanlegan fyrirvara svo rekstraraðilar geti gert raunhæfar áætlanir og nauðsynlegar ráðstafanir.

Fólk í fyrirtækjarekstri er í flestum tilfellum venjulegt fólk með allt sitt undir. Ef ummæli aðstoðarmannsins lýsa almennu viðhorfi borgaryfirvalda til atvinnurekenda er illt í efni.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×