Eins og fram kom í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær hefur fjöldi fíkniefnamála sem upp hafa komið á Keflavíkurflugvelli, fyrstu sex mánuði ársins, nær staðið í stað samanborið við síðasta ár en þó er innihaldið í hverri og einni sendingu mun meira en áður.
„Það sem er kannski að breytast er að magnið sem er í hverri sendingu, ef við tökum til dæmis meðaltal á haldlögðum sendingum núna á kókaíni, þá erum við með svona í kringum 1,2 kíló í hverri sendingu núna á móti rúmum 600 grömmum í fyrra, þannig að við erum kannski að sjá stærri sendingar,“ segir Guðrún Sólveig Ríkharðsdóttir, yfirtollvörður á Keflavíkurflugvelli.

Mikið lagt á sig til að fela efnin í ferðatöskum
Guðrún segir að innflutningsaðferðir hafi breyst og er mikið lagt á sig til þess að reyna fela efnin í sérútbúnum ferðatöskum. Það sem af er ári hefur Tollgæslan á Keflavíkurflugvelli haldlagt tíu kíló af kókaíni en kannabismálum hefur fækkað umtalsvert. Haldlagt hass nemur 650 grömmum fyrstu sex mánuði þessa árs samanborið við tæplega fimm kíló á sama tímabili á síðasta ári.„Hass sem slíkt hefum við ekki verið að sjá eins og núna við höfum hins vegar verið að sjá töluvert af kannabisolíunni og þá er hún að koma inn í gegnum hraðsendingarnar suðurfrá,“ segir Guðrún.
Þá segir Guðrún Sólveig að innflutningur á ólöglegum lyfjum hafi fækkað. „Ef við tökum bara lyfjamálin, þá eru þau helmingi færri núna miðað við síðasta ár en við erum samt að sjá stórar sendingar. Við erum komin í 7500 töflur til dæmis af OxyContin þar sem af er ári,“ segir Guðrún Sólveig Ríkharðsdóttir, yfirtollvörður hjá Tollgæslunni á Keflavíkurflugvelli.