Ákvörðunin fer nú til borgar- og bæjarstjórna á höfuðborgarsvæðinu í kynningar- og samþykktarferli. Sorpa er í eigu Reykjavíkurborgar og bæja á höfuðborgarsvæðinu.

„Hins vegar er 719 m.kr. kostnaður vegna tækjabúnaðar í stækkaða móttökustöð SORPU í Gufunesi. Gert var ráð fyrir þessum kostnaði í áætlun SORPU fyrir árið 2018 en láðist að færa hann inn í fjárfestingaáætlun ársins 2019. Á móti kemur að byggingakostnaður vegna stækkunar stöðvarinnar, sem gert var ráð fyrir að yrði 605 milljónir króna, verður lægri eða á bilinu 361 til 418 milljónir króna.“
Samtals nemur viðbótarkostnaður frá samþykktri fjárfestingaáætlun vegna gas- og jarðgerðarstöðvar og vegna kostnaðar við tækjabúnað í móttökustöð tæplega 1,4 milljörðum króna.

Málið hefur að því er fram kemur í tilkynningunni verið til umræðu á eigenda- og stjórnarfundum SORPU bs. í júlí og ágúst.
„Þar hefur framkvæmdastjóri SORPU bs. kynnt tillögur um aðgerðir til að mæta þessari breyttu stöðu. Tillögur hans gera ráð fyrir að semja við lánastofnanir um skuldbreytingu og lengingu lána og að tekin verði ný lán upp á 990 milljónir króna til 15 ára. Einnig að frestað verði kaupum á hluta tækjabúnaðar í móttökustöðina í Gufunesi og að nokkrum öðrum óskyldum fjárfestingum verði frestað. Á stjórnarfundi SORPU í morgun var bókað að fara þurfi yfir verkferla félagsins og var formanni og varaformanni stjórnar falið að fá óháðan aðila til að framkvæma úttekt á starfsemi félagsins og leggja tillögur þar að lútandi fyrir næsta fund stjórnar.“