Skoðun

Hjallastefnan í þrjá áratugi

Þórdís Jóna Sigurðardóttir skrifar
Þann 25. september árið 1989 tók Margrét Pála Ólafsdóttir við rekstri leikskólans Hjalla í Hafnarfirði og markaði það upphafið að starfsemi Hjallastefnunnar. Hjallastefnan fagnar því 30 ára afmæli. Fjöldi starfsfólks á Hjalla var á þeim tíma liðlega tuttugu og nemendurnir á fjórum leikskóladeildum en Hjalla var ætlað að verða fjölmennasti leikskóli landsins sem hann og varð. Frá upphafi var sýnin fyrir nýjan skóla skýr og einföld. Hún var sú að tryggt skyldi að hverju einasta barni liði vel í skólanum. Hjallastefnan setti sér því snemma meginreglur sem enn þann dag í dag marka allt skólastarfið þar sem jafnrétti er grunnstefið í allri nálgun í starfseminni. Lýðræði meðal barna og starfsfólks er í hávegum haft og kraftur sköpunar er nýttur börnunum til handa.

Meginreglurnar sex

Hjallastefnan byggir á 6 meginreglum sem hafa það markmið að byggja upp jákvæða og kærleiksríka skólamenningu en mikilvægasta meginreglan er þó sú að mæta skuli hverju barni eins og það er og af virðingu ásamt því sem Hjallastefnan viðurkennir ólíkar þarfir aldurshópa, kynja og einstaklinga. Önnur meginregla er sú að stuðla skuli að því að jákvæðni, gleði og kærleikur séu ráðandi öfl í samskiptum starfsfólks og í öllum samskiptum við börn, foreldra og aðra sem koma að málefnum skólans. Þá hefur Hjallastefnan jafnframt barist fyrir jafnræði meðal skóla landsins þegar kemur að opinberum fjárframlögum og að allir foreldrar njóti valfrelsis um skóla þegar kemur að uppeldi og menntun barna, óháð fjárhagsstöðu. Þá er valdefling kvenna ennfremur eitt af leiðarljósum Hjallastefnunnar enda var skólinn stofnaður af konu, allur reksturinn er í höndum kvenna, nær allir stjórnendur eru konur, meirihluti eiganda eru konur og starfsfólk leik- og grunnskóla er að meirihluta konur.



Sautján skólar Hjallastefnunnar

Hjallastefnan skilgreinir sig sem félag á sviði uppeldis og menntunar á leik- og grunnskólastigi, en alls starfrækir skólinn fjórtán leikskóla á landinu í tíu sveitarfélögum, sex á höfuðborgarsvæðinu, þrjá í Reykjanesbæ, og einn í Suðurnesjabæ (Sandgerði) auk fimm leikskóla á landsbyggðinni; Skagaströnd, Ísafirði, Akureyri, Bifröst í Borgarfirði og Vestmannaeyjum. Einnig rekur Hjallastefnan þrjá grunnskóla í þremur sveitarfélögum fyrir börn á aldrinum 5 – 10 ára; Barnaskólann í Reykjavík, Garðabæ og Hafnarfirði.

Hjá Hjallastefnunni starfa um 450 manns og nemendur eru um 1.800 talsins. Samkvæmt lista Frjálsar verslunar yfir 300 stærstu fyrirtæki landsins er Hjallastefnan númer 40 þegar kemur að fjölda starfsfólks og í sæti 150 þegar miðað er við fjárhagslega veltu. Það hefur því mikið vatn runnið til sjávar á 30 ára sögu Hjallastefnunnar.



Hjallastefnan í Skotlandi

Hjalli-model er systurfyrirtæki Hjallastefnunnar sem rekið hefur skólann Elmwood í Glasgow í eitt ár. Skólinn starfar samkvæmt hugmyndafræði Hjallastefnunnar og hafa skoskir foreldrar og börn tekið þessum nýja valkosti opnum örmum enda gengur reksturinn vonum framar. Þess má ennfremur geta að rúmlega 270 gestir á vegum erlendrar fjölmiðla og fagfólks víða að úr heiminum heimsóttu skóla Hjallastefnunnar hér á landi á síðasta skólaári og ber fjöldinn vott um áhuga og aukna eftirspurn eftir nýjum hugmyndum í skólastarfi. Til okkar streyma reglulega gestir úr öllum heimsálfun og hafa margir gert skólastarfinu góð skil í fjölmiðlum. Við þau tímamót sem nú eru við 30 ára afmæli Hjallastefnunnar er tilefni til að óska frumkvöðlinum Margréti Pálu Ólafsdóttur, stofnanda Hjallastefnunnar, til hamingju með afraksturinn og um leið framsýni hennar í skóla- og menntunarmálum í þágu æsku landsins.

Höfundur er framkvæmdastjóri Hjallastefnunnar




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×