Skoðun

Fjölbreytt úrræði í þágu borgarbúa

Geir Finnsson skrifar
Umferðarmenning okkar hefur hingað til miðast við nánast óhjákvæmilega nauðsyn fyrir einkabílinn og er notkun hans orðin það mikil að hún teppir umferð, torveldar samgöngur og eykur mengun. Við stöndum því frammi fyrir brýnni nauðsyn þess að horfa til framtíðar og gera gagngerar úrbætur í samgöngumálum borgarbúa.

Umræðan um almenningssamgöngur og umferð hjólandi og gangandi hefur litast of mikið af þeirri hugmynd að Reykjavík sé á einhvern hátt frábrugðin öðrum borgum og ekki sé hægt að leggja sömu áherslu á virka ferðamáta og annars staðar. Þetta er að sjálfsögðu ekki rétt. Skipulagið sem hefur verið ráðandi síðustu áratugi tók mið af bílaumferð. Borgarbúum hefur því aðeins verið boðinn einn valkostur í samgöngum sem mætir ekki kröfum nútímasamfélags og þeirri frjálslyndu og víðsýnu borg sem Reykjavík er að öllu jöfnu.

Það kom mér því skemmtilega á óvart að bæði ríki og sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu hefðu náð að landa samkomulagi sem tryggir okkur höfuðborgarsvæði með fjölbreyttum samgönguúrræðum. Það er alls ekki sjálfgefið. Skipulags- og samgöngumál taka tíma og eru almennt flóknari en flest. Það er því ekki að ástæðulausu að við höfum lagt svo mikla vinnu í að endurskipuleggja borgina og breyta henni, svo að borgarbúum standi til boða að velja úr samgöngumátum. Við verðum að vanda til verka, því þær ákvarðanir sem við tökum um samgöngumál hér og nú varða ekki síst framtíðarkynslóð borgarbúa.

Ekki er boðlegt að afhenda ungu fólki bílaborgina sem við búum í núna. Við þurfum að gera umhverfisvænni kosti fýsilegri í stað þess að leggja áherslu á að götur Reykjavíkur rúmi fleiri bíla. Krafan um aðgerðir gegn loftslagsbreytingum kemur líka fyrst og fremst frá ungu fólki og það á varla að koma neinum á óvart. Þegar ég sat minn fyrsta borgarstjórnarfund í vikunni ollu ummæli fulltrúa minnihlutans mér vonbrigðum. Þau virtu þessar kröfur að vettugi og töluðu frekar fyrir hagsmunum einkabílsins en fólksins. Það eru ekki fleiri bílastæði sem fá fólk á mínum aldri til að flytjast aftur heim frá útlöndum!

Samgöngusáttmálinn er ekki fullkominn. Mín vegna hefði mátt gera enn betur í þágu almenningssamgangna og umhverfismála. Borgaryfirvöld geta í það minnsta fagnað þessu samkomulagi þar sem það býður okkur raunverulegt tækifæri til að efla umhverfisvæna samgöngumáta, ekki síst þar sem um helmingur fyrirhugaðra fjárfestinga fer í grænar samgönguúrbætur.

Það er framsýni að sjá fyrir okkur borg sem býður upp á fleiri en eitt raunhæft úrræði í samgöngum. Það er framsýni að taka þannig risastórt og djarft skref í átt að betri borg.

Höfundur er varaborgarfulltrúi Viðreisnar.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×