Matarbloggarar sameina krafta sína í nýrri uppskriftabók Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 14. október 2019 10:23 María Gomez segir að bloggararnir þekkist ekki vel innbyrðis en heildarútkoman verið einstaklega vel heppnuð. Aðsend mynd
Bloggararnir María Gomez, Anna Eiríks, Berglind Hreiðars, Hildur Rut, Lólý og Tinna Alavis voru að gefa út saman bókina Vinsælustu uppskriftirnar frá vinsælum matarbloggurum. Um er að ræða fallega uppskriftabók þar sem lesendur fá einnig að kynnast betur konunum á bakvið allar fallegu matarmyndirnar og girnilegu uppskriftirnar. „Við eigum hver sinn kafla, Gunni hafði samband við okkur og bað okkur um að láta sig hafa efni um vinsælustu uppskriftirnar af síðunum okkar,“ segir María Gomez sem heldur úti bloggsíðunni Paz.is. María skrifar mikið um mat og innanhúshönnun og er líka dugleg að gefa fólki Innblástur í gegnum Instagram. „Hver og ein fær að vera hún sjálf. Við eigum matarmyndirnar og uppskriftirnar í okkar kafla, tökum myndirnar sjálfar og skrifum textann, þetta er svo skemmtilegt því þeir sem þekkja mitt efni sjá alveg mig í mínum kafla.“María segir að hver og einn bloggari fái að njóta sín í þessari bók.Mynd/Hildur RutPersónulegir kaflar Þessar öflugu konur á bakvið bókina eru allar að gera góða hluti en þekktust samt ekki vel innbyrðis, sumar þeirra munu hittast í fyrsta skipti í útgáfupartýinu. „Það er svolítið fyndið að kalla þetta samstarfsverkefni því að við þekkjumst ekkert. Ég og Berglind vorum aðeins búnar að kynnast áður og ég og Hildur þekktumst lítillega en það hefur nú myndast vinskapur milli mín og Hildar og mín og Berglindar en við erum aldrei þrjár að tala saman,“ segir María og hlær. „Verðið er líka snilld, svo þetta er frábær jólagjöf.“ María segir að það geri bókina að heild, að fremst og aftast í bókinni og á undan hverjum kafla, eru fallegar svarthvítar myndir sem Hildur Rut tók af þeim öllum fyrir bókina. Á undan hverjum kafla eru persónulegar myndir sem Hildur Rut tók af hverjum bloggara og margar völdu að hafa fjölskylduna með á myndunum líka. „Hver og ein er með upphafskafla þar sem hún segir frá sjálfri sér með eigin orðum.“María segir að spænsk áhrif séu áberandi í mörgum af hennar uppskriftum.Mynd/María GomezÍhugaði að hætta að blogga Það er Gunnar Már Sigfússon sem gefur út bókina en hann hefur einnig gefið út LKL bækur síðustu ár. María segir að það sé æðislegt að sjá hvað styrkleikar hverrar og einnar fái að njóta sín í bókinni, hvort sem það eru heilsuuppskriftir eða girnilegar kökur. „Hildur Rut setur upp bókina en Gunni kom með hugmyndina að útlitinu, hann hafði séð þetta einhvern tímann í tímariti fyrir mörgum árum í Ameríku og hann langaði svo í þetta útlit á bók, þetta sat alltaf í honum.“ María heldur úti vinsælu bloggi og Instagram síðu, full af fallegri innanhúshönnun og girnilegum uppskriftum.Mynd/María GomezMaría segist vera stolt af því að vera hálfur Spánverji og spænsk menning er stór partur af hennar lífi, eldamennskan er því oft undir spænskum áhrifum. „Minn stíll, hvernig ég blogga, er að það fylgir alltaf smá saga með uppskriftinni. Mér sjálfri finnst persónulega gaman að lesa bækur þar sem það fylgir eitthvað persónulegt með uppskriftum.“ María segir að þessi bók hafi komið á fullkomnum tíma þar sem hún stóð á tímamótum með bloggið sitt og var jafnvel að íhuga það að loka síðunni. Bókin gaf henni kraft til að halda áfram og eru því spennandi tímar og verkefni framundan hjá henni á næstunni. „Þetta er svo falleg bók. Hugmyndin er sú að þetta verði að bókasería, sem hægt verði að safna.“ Gunnar Már stefnir á að gefa út fleiri svona bækur með uppskriftum eftir mismunandi aðila, en útlitið verður alltaf það sama svo þær verða flottar saman uppi í hillu.Heiðraði föður sinn Bókin er auglýst þannig að þar sé að finna 20 uppskriftir frá sex bloggurum, en staðreyndin er sú að í bókinni eru 121 uppskrift.„Pabbi dó þegar ég var að gera þessa bók. Daginn eftir að ég samþykkti að vera með var hringt í mig og sagt að pabbi væri veikur á spítala, ég þarf því bara að stökkva út.“ Þegar María frétti af veikindunum bókaði hún sér flug til Spánar, til þess að missa ekki af tækifærinu til að kveðja.Ein uppskrift Maríu er tileinkuð föður hennar, sem lést á meðan bókin var í vinnslu.Mynd/Úr einkasafni„Þá fór ég til konunnar hans sem ég var að hitta í fyrsta skipti, þau höfðu verið gift í mörg ár en við pabbi hittumst bara alltaf einhvers staðar annars staðar, eins og í þorpinu hjá systur hans. Þarna kynnist ég henni í fyrsta skipti, þegar pabbi var veikur og dauðvona á spítala. Hún bakar handa mér uppáhalds kökuna hans pabba og gefur mér uppskriftina. Ég geri hana um leið og ég kem heim og tek myndir af henni og bað Gunna um að fá að hafa hana í bókinni til heiðurs pabba.“ María fékk því að hafa eina leyniuppskrift í bókinni, honum til heiðurs. Faðir Maríu lést viku eftir að hún kom heim aftur frá því að heimsækja hann á spítalann á Spáni.„Ég hef ótrúlega mikla trú á þessari bók og er virkilega stolt af henni. Hver og ein fær að skína í sínum kafla.“Úr bókinni Vinsælustu uppskriftirnar frá vinsælum matarbloggurum.Mynd/María GomezÁhugasamir geta fylgst með Maríu á Instagram HÉR.
Bókmenntir Matur Tengdar fréttir Heldur fast í spænsku ræturnar í matargerðinni María Gomez hefur ástríðu fyrir spænskri matargerð og deilir auðveldum uppskriftum með lesendum. 18. apríl 2018 11:30 Tinna tjaldaði öllu til fyrir afmælisveisluna „Það sem mér finnst best að gera er að fá hugmyndir á Pinterest svona tveimur mánuðum fyrir afmælið og ákveða þema,“ segir Tinna. 3. maí 2016 14:00 Fermingarterta skreytt með gulli Berglind Hreiðarsdóttir hefur haldið úti glæsilegri bloggsíðu þar sem sjá má gullfallegar tertur. Berglind bauð upp á gulltertu í fermingu dóttur sinnar og gefur hér uppskriftina að henni. 26. febrúar 2019 16:00 Mest lesið Seldist upp daginn eftir kosningasigur Kristrúnar Tíska og hönnun Laufey Lín og Bjarki á lista Forbes Lífið Birgitta prinsessa er látin Lífið „Risa tilkynning“ Lífið Gleðilegir gestir í hátíðarskapi á safninu Menning „Ég myndi ekki vilja fá þetta í andlitið“ Lífið Þetta hlustaði heimsbyggðin á árið 2024 Lífið Taka sér hlé hvort frá öðru Lífið Til að fá listamannalaun þarftu að vera í náðinni Lífið 40 ára kona: Er of seint að deita konur? Lífið Fleiri fréttir Ásta Fanney til Feneyja Þetta hlustaði heimsbyggðin á árið 2024 Birgitta prinsessa er látin Laufey Lín og Bjarki á lista Forbes Með okkar augum fengu Kærleikskúluna Flatur strúktúr gekk ekki upp Fyrsta verkefni þingmanna verði að mála mynd hver af öðrum Tónlistarkona selur íbúð í miðbænum „Ég myndi ekki vilja fá þetta í andlitið“ Taka sér hlé hvort frá öðru Sá yngsti 23 ára og sá elsti 98 ára Þjóðþekktir einstaklingar búa til pláss fyrir grínstjóra UNICEF „Risa tilkynning“ Komst í jólaskapið í september 40 ára kona: Er of seint að deita konur? Fitusmánuð á rauða dreglinum Daníel Takefusa og Ásdís Eva selja íbúð á eftirsóttum stað Sóli mátti bara tala í eftirhermum Heitasti útvarpsmaður landsins selur slotið Dagur og Jónas Reynir fá ekki starfslaun Gummi Kíró og Lína fagna fimm árum af ást Til að fá listamannalaun þarftu að vera í náðinni Hlýlegt sjónvarpsherbergi með vínbar í Garðabæ Kvöddu með stæl Ástfangnar í tuttugu ár Gísli Pálmi er orðinn pabbi Harold með ólæknandi krabbamein Opna „hommalegustu blómabúðina í bænum“ Orð ársins vísar til rotnunar heilans Alma Möller og Inga Sæland í mesta stuðinu Sjá meira
Heldur fast í spænsku ræturnar í matargerðinni María Gomez hefur ástríðu fyrir spænskri matargerð og deilir auðveldum uppskriftum með lesendum. 18. apríl 2018 11:30
Tinna tjaldaði öllu til fyrir afmælisveisluna „Það sem mér finnst best að gera er að fá hugmyndir á Pinterest svona tveimur mánuðum fyrir afmælið og ákveða þema,“ segir Tinna. 3. maí 2016 14:00
Fermingarterta skreytt með gulli Berglind Hreiðarsdóttir hefur haldið úti glæsilegri bloggsíðu þar sem sjá má gullfallegar tertur. Berglind bauð upp á gulltertu í fermingu dóttur sinnar og gefur hér uppskriftina að henni. 26. febrúar 2019 16:00