Saksóknarar í Svíþjóð hafa lagt niður rannsókn á máli Julian Assange en hann hefur verið þar grunaður um nauðgun. Nýjar yfirheyrslur fóru fram í sumar vegna málsins, en síðan hefur ekkert heyrst frá saksóknurum.
Assange er stofnandi Wikileaks og er nú í öryggisfangelsi í Lundúnum eftir að hann var handtekinn af bresku lögreglunni í apríl. Hann fékk hæli í sendiráði Ekvadors eftir að ásakanirnar um nauðgun komu upp árið 2010, en stjórnvöld í Ekvador ráku hann á dyr í apríl síðastliðinn og var hann í kjölfarið handtekinn af bresku lögreglunni.
Eftir að Assange var handtekinn ákváðu sænskir saksóknarar að taka málið upp að nýju, en rannsókninni hafði verið hætt árið 2017.
Saksóknarinn Eva-Marie Persson greindi frá ákvörðuninni um að leggja niður rannsóknina á blaðamannafundi í hádeginu.
Bandarísk stjórnvöld vilja fá Assange framseldan en það verður tekið til meðferðar í febrúar á næsta ári. Assange á yfir höfði sér ákærur í Bandaríkjunum, meðal annars fyrir brot á njósnalögum og að hafa lekið trúnaðargögnum.