„Ísland er búið að vera heitasti áfangastaður ferðalanga heimsins núna í nokkur ár en almennt eru ferðamenn að sækja norður. Grænland á þannig framtíðina fyrir sér en ballið er rétt að byrja, þegar nýi alþjóðaflugvöllurinn og þjóðvegurinn verða reddí á allt eftir að breytast,“ segir Erpur.
„Í dag ferðast menn um þetta risavaxna land með þyrlum, bátum og snjófarartækjum, lítill túrismi þannig séð. Svo það er sérstaklega spennandi að skella sér núna. Túristarnir fatta það bráðum, hérna á Íslandi til dæmis borga menn tugi þúsunda til að skoða sílamáva og veiða ufsa en þegar maður fer rétt út fyrir byggðarlög Grænlands sér maður þvílíkar ófreskjur; rostunga, ísbirni og haugana af stórhvelum.“

„Þarna getur þú keypt ferska exótíska ávexti, kókoshnetur og einhverja veislu og næsta búð við hliðina græjar þig með alls konar hvalkjöti og sauðnauti,“ segir Erpur.
„Snjósleðar og mótorhjól eru reyndar bönnuð innan borgarmarka og þú sérð fleiri Porsche heldur en hundasleða, en engu að síður mjög frábrugðið og spennandi. Við vorum sem sagt með matar og menningar pop-up, BlazRoca rapp festival og KO.RE setti kóreskan götumat sinn í grænlenskan búning, var með hreindýr og selkjöt við gríðarlega ánægju heimamanna,“ segir Erpur.
„Við fylltum þarna skemmtistaðinn Manhattan og létum íslenskar Kópavogsrímur föndra við mannskapinn. Við gerum það sama núna um helgina í Færeyjum á hinum hálf íslenska Sirkus í Þórshöfn. Það verða með okkur rapparar af svæðinu og hráefnið verður það líka, eflaust grindhvalur og pysjuvængir með kimchi.“

„Svo verða frændur okkar í Færeyjum í sviðsljósinu þessa helgi, fólk getur fylgst með Instagramminu minu og Snapchatti. Atlantic Airways flýgur reyndar frá Keflavíkurflugvelli en fyrir vikið er flugið sneggra, enda þota sem um ræðir, en ekki huggulegu spaðarellurnar sem ferja mann til Grænlands.“
