Skoðun

Rúm­lega 93 milljónir sem hverfa til Lúxem­borgar

Björn Scheving Thorsteinsson skrifar

Sæll Þórður Már,



Þann 24. oktober sl. mættir þú sem vitni fyrir héraðsdóm Reykjavikur til að svara spurningum okkar, m.a. um fjórar millifærslur upp á samtals 1600 milljónir króna af bankareikning fjárfestingarfélagsins Gnúps hf. þann 24. oktober 2006.



Sem forstjóri félagsins og prókúruhafi gastu ekki útskýrt þessar millifærslur og það sama sagði persónulegur endurskoðandi þinn, Helgi Arnarson hjá KPMG, sem svo óheppilega vildi til að var einnig endurskoðandi Gnúps hf. Hann gat ekki heldur útskýrt þessar millifærslur.



Í vitnastúku fyrir héraðsdómi sagðir þú dómaranum að þú hafir alla tíð sl. áratug verið tilbúinn að hitta okkur og fara yfir málefni Gnúps.



Það er ljóst að eitthvað hefur þú farið mannavillt hvað þetta varðar, Þórður minn, þar sem við feðgar höfum ítrekað reynt að ná af þér tali sl. ár en þú ávallt neitað að tala við okkur. Við fögnuðum samt þessari yfirlýsingu þinni fyrir dómi um daginn og sendum því þrjár fyrirspurnir á þig og lögmann þinn sl. vikur, óskandi eftir fundum eða símtali til að fara yfir málefni Gnúps enda fjöldi mála sem enn þarfnast skýringar. Engin svör hafa borist frá þér eða lögmanni þínum.



Sjá einnig: Eignir þriggja kynslóða fuðruðu upp

Við höfum einnig reynt að fá svör frá félaga þínum og persónulega endurskoðanda, Helga Arnarsyni KPMG, en eins og þú manst réðstu hann til að vera endurskoðanda Gnúps, án árangurs. KPMG svarar engu.

Við reynum því núna gegnum fjölmiðla og vonumst núna til að þú sjáir þér fært að svara okkur, ekki síst vegna þessa að þú sagðir dómaranum um daginn að þú hafir alla tíð verið tilbúinn að ræða við okkur.



Þú þekkir þetta mál Þórður minn, enda við ítrekað leitað svara hjá þér það sem af er ári:



Þann 16. nóvember 2006 millifærir viðskiptastjóri okkar félaga innan Glitnis, Birkir Kristinsson, skv. fyrirskipun þess efnis, Exista hlutabréf að verðmæti rúmlega 90 milljónir króna af reikningum okkar eignahaldsfélaga yfir á kennitölu Gnúps. Við fáum ekki greitt fyrir þessi hlutabréf og bókhald okkar geymir engar skýringar. Þessi verðmæti einfaldlega „hverfa”.



Sama dag, 16. nóvember 2006, kemur sami fjöldi Existabréfa (rúmlega 90 milljónir króna) inná einkareikning eins stjórnenda Gnúps hf í Lúxemborg.



Sem forstjóri Gnúps og prókúruhafi félagsins, er ljóst að þú veist allt um þetta mál.



Þvi væri ég þakklátur fyrir svör frá þér:

1.

Af hverju fá félög okkar ekki greitt frá Gnúp fyrir þessi Exista hlutabréf (rúmlega 90 milljóna króna virði) sem eru millifærð af okkar reikningum til Gnúps hf, þann 16. nóvember 2006 ?

2.

Af hverju er Gnúpur að millifæra þessi sömu hlutabréf inná einkareikning eins stjórnanda Gnúps hf. í Lúxemborg þennan sama dag, 16. nóvember 2006? Hvernig er þetta bókfært í bókhaldi Gnúps?



Með fyrirfram þakklæti um skjót svör.



Höfundur ritar f.h. stjórnar Lyfjablóms hf. (áður Björn Hallgrímsson ehf.)


Tengdar fréttir

Eignir þriggja kynslóða fuðruðu upp

Fjölskylda Björns Scheving Thorsteinssonar krefst alls 2,3 milljarða króna bóta vegna þess sem hún telur blekkingar í starfsemi Gnúps fyrir hrun.




Skoðun

Sjá meira


×