Spænski miðjumaðurinn Pablo Fornals varð næstdýrasti leikmaður í sögu West Ham þegar hann var keyptur til félagsins frá Villarreal síðastliðið sumar.
West Ham borgaði tæpar 30 milljónir punda fyrir þennan 23 ára gamla leikmann sem hefur spilað tvo A-landsleiki fyrir Spánverja.
Fornals hefur ekki slegið í gegn hjá Lundúnarliðinu ennþá en hefur þó verið að fá stærra hlutverk í undanförnum leikjum. Hann viðurkennir að hafa ekki búist við að enska úrvalsdeildin væri jafn erfið og raun ber vitni.
„Þessi deild er ótrúleg. Margir segja að þetta sé besta deild í heimi en ég held að maður skilji það ekki fyrr en maður fær að finna það á eigin skinni og upplifa það sjálfur,“ segir Fornals.
„Allir leikvangarnir eru troðfullir. Okkar stuðningsmenn fylgja okkur út um allt land. Ákefðin og styrkur deildarinnar er mjög ólíkur því sem gerist á Spáni og ég nýt þess að fá að reyna mig hér,“ segir Fornals.
Viðurkennir að hafa vanmetið ensku úrvalsdeildina
Arnar Geir Halldórsson skrifar

Mest lesið


„Ég horfði á leikinn og sparkaði tebollanum í gólfið“
Enski boltinn

„Vorum bara heppnir að landa þessu“
Körfubolti



„Orkustigið var skrítið út af okkur“
Körfubolti



