Öldungadeildarþingmaður Repúblikanaflokksins ætlar að stíga til hliðar sem formaður leyniþjónustunefndar öldungadeildarinnar á meðan rannsókn stendur yfir á hlutabréfaviðskiptum hans um það leyti sem markaðir hrundu vegna kórónuveirufaraldursins.
Fulltrúar alríkislögreglunnar FBI gerðu húsleit á heimili Richards Burr, formanns leyniþjónustunefndarinnar, og lögðu hald á síma hans í gær. Leitin tengist rannsókn FBI á hvort að Burr hafi framið innherjasvik með hlutabréfaviðskiptum á sama tíma og hann fékk reglulega upplýsingar og skýrslur um hættuna af kórónuveirunni í vetur.
Mitch McConnell, leiðtogi repúblikana í öldungadeildinni, segir að Burr hafi tilkynnt sér í morgun um ákvörðun sína um að víkja sem formaður leyniþjónustunefndarinnar á meðan rannsóknin er í gangi eftir morgundaginn. Leyniþjónustunefndin hefur meðal annars eftirlit með störfum FBI.
Dianne Feinstein, öldungadeildarþingmaður demókrata frá Kaliforníu, er einnig sögð hafa verið yfirheyrð vegna verðbréfaviðskipta eiginmanns hennar á sama tímabili og Burr átti sín viðskipti. Þau hjónin seldu hlutabréf fyrir á bilinu 1,5-6 milljónir dollara frá 31. janúar til 18. febrúar.
Það er nær alfarið í höndum McConnell, leiðtoga repúblikana í öldungadeildinni, hver tekur við af Burr. Nöfn James E. Risch frá Idaho og Marco Rubio frá Flórída hafa verið nefnd í því samhengi en hvorugur þeirra vildi tjá sig við Washington Post.
Burr hefur, ólíkt mörgum öðrum kollegum sínum í Repúblikanaflokknum, reynt að forðast að taka þátt í tilraunum Donalds Trump forseta til þess að koma óorði á leyniþjónustustofnanir Bandaríkjanna og gera þær að pólitísku bitbeini. Fyrir vikið hafa samskipti Burr og Trump á köflum verið stirð, að sögn Washington Post.