Keppni í Olís-deild karla hefst á ný í kvöld eftir rúmlega tveggja vikna hlé. Síðast var leikið í deildinni mánudaginn 24. febrúar. Arnar Björnsson fór yfir 20. umferð Olís-deildarinnar með Guðlaugi Arnarssyni, sérfræðingi Seinni bylgjunnar.
Valur er með tveggja stiga forystu á FH þegar þrjár umferðir eru eftir. Það var erfitt að sjá það fyrir laugardagskvöldið 12. október en þá töpuðu Valsmenn þriðja leiknum í röð með eins marks mun. Það var fjórði ósigur Valsmanna í sex fyrstu umferðunum. Frá þeim leik hefur Valur ekki tapað og aðeins tapað einu stigi.
ÍBV fagnaði bikarmeistaratitlinum um helgina og Eyjamenn fá ÍR-inga í heimsókn. Líkt og Valsmenn hafa Eyjamenn verið á flugi í síðustu leikjum. Þeir eru í 6. sæti með 24 stig og stutt er í liðin þar fyrir ofan. ÍR er í sætinu fyrir neðan, tveimur stigum á eftir. ÍR vann leik liðanna í Austurberginu í nóvember með fimm marka mun. Liðin mætast klukkan 18:30 í kvöld. Leikurinn verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 3.
Afturelding mætir botnliði Fjölni að Varmá í kvöld og getur með sigri náð 2. sætinu. Liðið er núna í 4. sæti með jafnmörg stig og Haukar og Selfoss sem mætast annað kvöld á Selfossi.
Fjölnir hefur aðeins unnið tvo leiki í vetur og gert eitt jafntefli og tapað 16 leikjum. Grafarvogsliðið er fallið og leikur í Grill 66 deildinni á næsta tímabili.
Fram og Stjarnan mætast í áhugaverðum leik í kvöld. Stjarnan er þremur stigum á undan Fram þegar sex stig eru í pottinum. Sigur Fram gerir baráttuna um áttunda og síðasta sætið í úrslitakeppninni áhugaverða. Stjarnan lék mjög vel í bikarkeppninni um helgina, vann Hauka í undanúrslitum en tapaði fyrir ÍBV í æsispennandi leik þar sem Stjarnan fékk svo sannarlega tækifæri til að vinna titilinn.
Það hefur fjarað undan KA í síðustu leikjum og Akureyrarliðsins bíður erfitt verkefni annað kvöld gegn FH. Leikurinn átti að vera í kvöld en vegna ófærðar var honum frestað til morguns. FH er í 2. sæti og bíður eftir tækifæri til að hirða toppsætið ef Valsmenn taka upp á því að tapa leik. Eftir leikinn í kvöld á Valur eftir að spila við KA fyrir norðan og Stjörnuna á heimavelli. FH á eftir að spila við Stjörnuna heima og heimavelli og Fram á útivelli.
Stórleikur 20. umferðannar verður á Selfossi annað kvöld þegar Haukar koma í heimsókn. Haukar voru á miklu flugi framan af leiktíð og unnu sjö marka sigur á Selfyssingum þegar liðin mættust í Hafnarfirði. Spurningin er hvort Haukar séu búnir að ná vopnum sínum á ný en það voru batamerki á liðinu í bikarleiknum við Stjörnuna um helgina.
Fréttina í heild sinni má sjá hér fyrir neðan.