Betri Banki í Færeyjum hefur ákveðið að loka hraðbönkum um eyjarnar og fækka þeim svo aðeins átta hraðbankar á þeirra vegum verði eftir á eyjunum. Á sama tíma hefur hinn stóri bankinn í Færeyjum, BankNordik, hækkað þjónustugjöld í sínum hraðbönkum.
Fjallað er um málið á vef Kringvarpsins þar sem rætt er við ósáttan íbúa í Skála. Segir hann nauðsynlegt að hafa hraðbanka á svæðinu, til að mynda þegar fólk ætlar að gefa peningagjafir eða kaupa miða á fótboltaleiki.
Ákvörðunin hefur komið illa við marga og söfnuðust meðal annars 279 undirskriftir í bænum og öðrum nágrannahverfum þar sem ákvörðuninni er mótmælt. Telja íbúar þetta mikla þjónustuskerðingu af hálfu bankans en Olav Guttesen bankastjóri segir það einfaldlega ekki borga sig að halda hraðbönkunum.