Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hefur boðað til upplýsingafundar fyrir blaðamenn klukkan tvö í dag.
Á fundinum verður fjallað um stöðu mála varðandi opnun landamæra Íslands. Upplýsingafundurinn verður í beinni útsendingu hér á Vísi sem og á Stöð 2 Vísi. Þá verður einnig fylgst með framvindu fundarins í beinni textalýsingu á Vísi.
Í gær hófust skimanir á landamærum Íslands og er ferðamönnum sem heimilt er að koma hingað til lands boðið að fara í skimun fyrir kórónuveiru, í stað þess að fara í 14 daga sóttkví.
Um 900 manns komu til landsins í gegnum Keflavíkurflugvöll í gær og gengu skimanir heilt yfir vel, líkt og fjallað var um í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær.