Sá dýrasti segist aldrei ætla að leika fyrir Mourinho aftur Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 25. júní 2020 07:31 Harry Kane og Tanguy Ndombele í æfingaleik gegn Norwich City áður en enska úrvalsdeildin fór af stað að nýju. Tottenham Hotspur/Getty Images
Portúgalinn José Mourinho hefur átt það til á sínum magnaða ferli að fá einstaka leikmenn upp á móti sér. Svo virðist sem Tanguy Ndombele, leikmaður enska úrvalsdeildarfélagsins Tottenham Hotspur, sé einn af þeim ef marka má heimildir ESPN. Lenti þeim tveimur saman nýverið og ku Ndombele hafa sagt Portúgalanum að hann myndi aldrei aftur spila undir hans stjórn. Ku rifrildið hafa byrjað á æfingavellinum og haldið áfram inn á skrifstofu Mourinho. Hinn 23 ára gamli Ndombele gekk í raðir Tottenham í sumar en hann kom á litlar 62 milljónir evra frá franska félaginu Lyon. Er hann dýrasti leikmaður í sögu félagsins. Hefur Ndombele fengið nóg af eilífri gagnrýni Mourinho síðan þjálfarinn tók við í nóvember á síðasta ári. Leikmaðurinn hefur verið á bekknum í báðum leikjum Tottenham síðan enska deildin fór af stað að nýju. Samkvæmt Mourinho er hann ekki í nægilega góðu ásigkomulagi til að byrja leiki liðsins en leikmaðurinn er ósammála. Ndombele valdi Tottenham – sem var þá þjálfað af Maurico Pochettino – frekar en Juventus, Paris Saint-Germain og Barcelona. Franska stórliðið hefur enn áhuga er ekki tilbúið að borga þær 60-70 milljónir evra sem Tottenham vill.
Enski boltinn Fótbolti Mest lesið Óánægður eftir brot á leikmanni Þóris: „Lífshættulegt“ Handbolti Neitaði að sýna regnbogaliti og félagið segist virða það Enski boltinn Svaraði baulinu með marki og reif sig úr að ofan Fótbolti Fengu fernu á sig frá Atla í miðju Evrópuævintýri Íslenski boltinn Arsenal dróst gegn Man. Utd en Liverpool og Tottenham heppin Enski boltinn Ákvað að yfirgefa KR Körfubolti Bruune fór illa með íslensku stelpurnar á Spáni Fótbolti Íslendingur með sviðsljósið á sér fyrir NBA leik Körfubolti „Þá rennur stressið af manni“ Handbolti Slóvenía bíður Íslands en ballið búið hjá heimakonum Handbolti Fleiri fréttir Neitaði að sýna regnbogaliti og félagið segist virða það Arsenal dróst gegn Man. Utd en Liverpool og Tottenham heppin Salah jafnaði met Rooneys Telja sprungur komnar í samband stjórans við stjörnuna Markvörður City: „Liverpool ekki besti hluti Bretlands“ Guardiola: „Bjóst ekki við þessu frá fólkinu í Liverpool“ Sanngjarn sigur Liverpool og meistararnir að heltast úr lestinni Chelsea náði Arsenal að stigum en Tottenham tapaði stigum Draumadagur fyrir Rashford og Zirkzee: Amorim lestin lögð af stað Liverpool bara með einn sigur í síðustu níu leikjum á móti Man. City Arne Slot: Hættuleg helgi fyrir Liverpool Sjö marka fyrri hálfleikur skaut Skyttunum í annað sætið Frábær byrjun Slot ekki nóg til að slá út Solskjær Guardiola: Núna þarf ég að sanna mig Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Leicester-menn skammaðir fyrir jólapartíið Kostað Manchester United marga milljarða að skipt um stjóra Réttarhöldin yfir Manchester City klárast fyrir jól Van Nistelrooy mættur aftur í ensku úrvalsdeildina Coote gaf gult spjald eins og hann talaði um fyrir leik Segir það sárt að vera ekki velkominn hjá Liverpool Metinn á rúmlega 17 milljarða fyrr á árinu en má nú fara á láni Liverpool væri bara í þrettánda sæti án markanna hans Mo Salah Hélt hreinu á móti Manchester City ökklabrotinn Carragher segir Salah vera eigingjarnan Refirnir skemmtu sér í Köben eftir tapið sem kostaði þjálfarann starfið Hamrarnir unnu óvæntan sigur í norðrinu Þríeykið rennur allt út á samning næsta sumar Potter orðaður við Leicester á nýjan leik Sjá meira