Sjáðu sigurmark Arnórs Borg Guðjohnsen og tvennu Pablo sem afgreiddi Blika Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. júlí 2020 07:30 KR-ingar fagna marki Stefáns Árna Geirssonar í gær og þar á meðal er Pablo Punyed sem átti eftir að skora tvö mörk í leiknum. Vísir/Bára
Fylkir og KR komust upp fyrir Blika og í tvö efstu sæti Pepsi Max deildar karla í fótbolta eftir góða sigra í sjöttu umferðinni í gærkvöldi. Fylkir og KR eru bæði með tólf stig en Fylkismenn eru ofar á markatölu og sitja því í toppsætinu næstu dagana. Fylkismenn sóttu þrjú stig í Kaplakrikann með því að vinna FH 2-1. Þórður Gunnar Hafþórsson kom Fylki í 1-0 og varamaðurinn Arnór Borg Guðjohnsen tryggði Árbæjarliðinu svo sigurinn fjórum mínútum eftir að hann kom inn á völlinn og fimm mínútum eftir að Daníel Hafsteinsson hafði jafnað metin fyrir FH. Arnór Borg Guðjohnsen var nálægt því að skora með sinni fyrstu snertingu í sínum fyrsta leik í sumar en hafði síðan þurft að bíða aðeins eftir fyrsta markinu í Pepsi Max deildinni. Það kom hins vegar á besta tíma fyrir Fylki og kom liðinu á toppinn. Hinn tvítugi Stefán Árni Geirsson var óvænt í byrjunarliði KR í 3-1 sigri á toppliði Breiðabliks og þakkaði traustið með því að skora fyrsta mark leiksins á annarri mínútu. Það var aftur á móti El Salvadorinn Pablo Punyed sem gerði útslagið með tveimur mörkum en á milli þeirra minnkaði Höskuldur Gunnlaugsson muninn í 2-1. Hér fyrir neðan má sjá mörkin úr þessum tveimur skemmtilegum fótboltaleikjum í gær. Klippa: Mörkin úr leik KR og Breiðabliks Klippa: Mörkin úr leik FH og Fylkis
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Ten Hag segir leikmenn í dag of viðkvæma Enski boltinn Uppgjörið: Fram - Afturelding 36-33 | Fram í bikarúrslit eftir framlengingu Handbolti Orri og félagar þurfa að koma til baka á Santiago Bernabéu Fótbolti Komnir með þrettán stiga forskot Enski boltinn Elísabet byrjar á tveimur töpum Fótbolti Orri með fjögur gegn strákunum hans Guðmundar Handbolti „Okkur langar virkilega að vinna titla hérna“ Sport Fimm mörk, rautt spjald og kærkominn sigur United Enski boltinn Labbar inn í stjórn UEFA án kosningar og fær fyrir 23 milljónir á ári Fótbolti Markalaust í Skírisskógi en Everton heldur áfram að safna stigum Enski boltinn Fleiri fréttir Atli Sigurjóns framlengir við KR Yngri bróðir Benoný Breka yfirgefur líka KR FH-ingar æfðu á grasi í febrúar Síðhærði Færeyingurinn snýr aftur norður Kemur meiddur til Víkings en þó á miklu betri stað Kveðst viss um eftirsjá Gylfa: „Hefðum unnið mótið í fyrra með hann“ ÍA fær Baldvin frá Fjölni Útlit fyrir að Kjartan fylli skarð Gylfa hjá Val „Held að fólk sé komið með leið á því að lesa um þessi félagsskipti“ Gylfi orðinn Víkingur Valsmenn settu sex gegn Grindavík Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Góður sigur Vestra og Fram tapaði gegn Lengjudeildarliði Samþykktu að taka áminningu af leikmönnum og fjölga útlendingum ÍR heldur áfram að hrella liðin úr Bestu deildinni Arnór Smára hættir sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Val Sindri Kristinn á óskalista KA Býst við Grikkjunum betri í kvöld „Þetta er einstakur strákur“ Barðist við tárin þegar hann kvaddi Eru þetta stærstu félagsskiptin síðan Pétur fór í KR? „Einbeiti mér að allt öðru en einhverri dramatík á Íslandi“ Faðir Gylfa Þórs segir Börk hafa gert samkomulag við sig „Kemur pabba mínum ekki við hvar ég spila fótbolta“ Nýr lögfræðingur KSÍ á yfir fjögur hundruð leiki í meistaraflokki Umdeild frammistaða Gylfa í kveðjuleiknum Samskiptin furðuleg og fólk tengt Gylfa við stýrið Erlendir miðlar fjalla um skipti Gylfa Þórs: Verður samherji Gunnars Vatnhamar Sjá meira