Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun víða um land, en spáð er miklu hvassviðri í kvöld og í nótt og sums staðar fram á föstudag.
Viðvörunin nær yfir Breiðafjörð, Vestfirði, Standir og Norðurland vestra, Norðurland eystra og svo Suðausturland.
Spáð er suðvestan hvassviðri eða stormi þar sem vindhraði mun víða geta farið upp í 35 til 40 metra á sekúndu. Verður veðrið varasamt fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind.
Gular viðvaranir:
- Breiðafjörður: 12. ágúst kl. 16:00 – 13. ágúst. kl. 16:00
- Vestfirðir: 12. ágúst. kl. 18:00 – 13. ágúst. kl. 23:00
- Strandir og Norðurland vestra: 12. ágúst. kl. 21:00 – 14. ágúst. kl. 12:00
- Norðurland eystra: 13. ágúst. kl. 03:00 – 14. ágúst. kl. 06:00
- Suðausturland: 13. ágúst kl. 06:00 – 14. ágúst. kl. 06:00