Ísland tapaði fyrir Ungverjalandi, 18-24, í síðasta leik sínum í E-riðli Evrópumótsins í handbolta. Íslendingar fara stigalausir í milliriðil II en Ungverjar taka tvö stig með sér.
Ungverjar skoruðu fyrstu þrjú mörk leiksins en Íslendingar svöruðu með 6-0 kafla. Ísland náði mest fimm marka forskoti í fyrri hálfleik en munurinn að honum loknum var þrjú mörk, 12-9.
Seinni hálfleikurinn var svo afleitur af Íslands hálfu. Liðið skoraði aðeins sex mörk gegn 15 mörkum Ungverjalands.
Ísland tapaði síðustu 16 mínútum leiksins, 8-1, og tapaði á endanum með sex mörk, 18-24.
Guðjón Valur Sigurðsson og Aron Pálmarsson voru markahæstir Íslendinga með fjögur mörk hvor.
Leik lokið: Ísland - Ungverjaland 18-24 | Algjört hrun og strákarnir fara stigalausir í milliriðil
