Gustav Magnar Witzøe er einn yngsti milljarðamæringur heims. Auðæfi hans eru metin á um 400 milljarða íslenskra króna og eru þau tilkomin vegna eldis á laxi í sjókvíum.
Vísir fjallaði um Witzøe fyrr í dag en norskir miðlar hafa oftar en ekki gert sér mat úr þeim ríka.
Gustav ratar reglulega í norsku miðlana en hann er vinsæll á samfélagsmiðlinum Instagram.
Þar er hann með 111 þúsund fylgjendur og má augljóslega sjá að hann hugsar mikið um tísku og ferðast reglulega á framandi og fallega staði um heim allan.
Gustav starfar einnig sem fyrirsæta og eins og sjá má á Instagram-reikningi hans eru nóg að gera hjá honum á þeim vettvangi.
Hér að neðan má sjá nokkrar vel valdar myndir af Instagram-reikningi hans þar sem augljóslega sést að hann elskar að ferðast um allan heim, og þar fer ávallt vel um kappann.







