Leiðangursstjóri hafrannsóknarskipsins Árna Friðrikssonar sem kemur í höfn í Reykjavík nú í hádeginu segir að fyrstu mælingar á loðnu bendi til þess að í ár sé aftur loðnubrestur á Íslandsmiðum. Fimm skip hafa leitað að loðnu síðustu tvær vikur og fundu þau loðnu en í litlu magni.
Hafrannsóknarstofnun ráðlagði engar loðnuveiðar á síðasta ári sem var mikið högg fyrir mörg sjávarútvegsfyrirtæki. Árni Friðriksson rannsóknarskip Hafrannsóknarstofnunar lagði af stað í loðnuleit fyrir tæpum tveimur vikum og var leitað á frá Hvalbaksgrunni fyrir austan, norður með Austfjörðum, fyrir Norðurland og út af Vestfjörðum.
Fjögur veiðiskip aðstoðuðu við leitina eða Bjarni Ólafsson, Ásgrímur Halldórsson, Hákon og Polar Amarok. Birkir Bárðarson leiðangursstjóri segir að veðuraðstæður hafi verið slæmar og lítil loðna hafi fundist.
„Fundum einhverja loðnu já, virtist ekki vera gengin austur fyrir Kolbeinseyjarhrygg. En það fannst loðna vestan við hrygginn og aðeins út af Vestfjörðum. En þó ekki í miklu magni.”
Eftir eigi að vinna úr gögnum leiðangursins.
„Okkar tilfinning er að þarna hafi ekki verið mikið magn á ferðinni.“
Hann segir að loðnuveiði í ár líti ekki vel út.
„Í fyrra mældist stofninn mjög lítill og við mældum hann ítrekað og endurtekið og það endaði með því að við gátum ekki mælt með veiðum og ég myndi segja að þessi fyrsta mæling okkar líti ekkert betur út.“
„Fyrsta mælingin er þá að vísa til að það verði ekki loðnuveiði í ár en verð að geta þess að loðnan getur verið brellin.“
Áætlað er að næsti leiðangur fari út þann 5. febrúar. Birkir segir afar mikilvægt að svo mörg veiðiskip hafi tekið þátt í leitinni nú og vonar að það verði áfram.
„Það má nefna það að eins og tíðin var núna að þetta hafi aldrei náðst svona nema með aðkomu margra skipa og samstilltu átaki í því,“ sagði Birkir Bárðarson.
Lítil von um loðnuveiði

Tengdar fréttir

Loðnuleiðangurinn á hraðri siglingu í átt til Vestfjarða
Hléið sem loðnuleitarleiðangur Hafrannsóknastofnunar gerði á loðnuleitinni í gær vegna illviðris reyndist mun styttra en búist var við. Skipin þrjú lögðu öll úr höfn frá Akureyri á ný í kringum miðnætti.

Enga loðnu að sjá við Hvalbak, leitarskip stefna á Langanes
Engin loðna hefur enn fundist fyrir Austurlandi á fyrsta eiginlega leitardegi loðnuleitarinnar. Fimm leitarskip reyna næsta sólarhringinn að komast yfir sem stærst svæði áður en næsta illviðri skellur á.

Loðnutorfur loksins fundnar út af Hornströndum og Húnaflóa
Fyrstu loðnutorfur vetrarins eru fundnar á Íslandsmiðum, norður af Hornströndum og Húnaflóa. "Þetta er nú ekkert gríðarlegt magn sem við sáum í heildina,“ segir leiðangursstjórinn.

Stutt hlé gert á loðnuleitinni meðan stormur gengur yfir
Leiðangursstjórinn segir mjög lítið hafa sést af loðnu, aðeins hrafl eða smátorfur á stangli en hvergi neitt verulegt magn. Hann telur að loðnan sé ekki gengin austur fyrir Kolbeinseyjarhrygg.