Nýtt lögregluráð tók til starfa í dag. Staða löggæslu á Íslandi var meðal annars til umræðu en menntaðir lögreglumenn eru á þriðja hundrað færri en greiningardeild ríkilögreglustjóra telur ásættanlegt. Dómsmálaráðherra vonandi til að faglærðum lögreglumönnum fjölgi hratt á næstu árum.
Lögregluráð kom saman í fyrsta skipti til fundar í dag. Ráðið er skipað ríkislögreglustjóra, öllum lögreglustjórum í landinu og héraðssaksóknara og er samráðsvettvangur sem byggist á því markmiði að tryggja hæfni lögreglunnar til að takast sameiginlega á við þær áskoranir sem uppi eru hverju sinni.

Fækkun menntaðra lögreglumanna hefur verið mætt með ráðningu ófaglærðra
Í Kompás á mánudag var dregin upp mynd af stöðu lögreglu á Íslandi. Menntuðum lögreglumönnum hefur fækkað á meðan íbúa- og ferðamannafjöldinn eykst. Álag er mikið og hafa lögreglumenn lýst því að meiri harka og ofbeldi mæti þeim í útköllum. Greiningardeild ríkislögreglustjóra segir í skýrslu að lögreglan búi ekki yfir nægilegum styrk til þess að takast breytingar samfélagsins.
Dómsmálaráðherra sagði í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær að lögreglumönnum hafi ekki fækkað. Skorti á menntuðum lögreglumönnum hafi verið mætt með ráðningu ófaglærðra lögreglumanna.

Menntuðum lögreglumönnum mun fjölga hratt á næstu árum
Er það réttlætanlegt að héraðslögreglumaður sem tekur 2-3 vikna námskeið og fái fullt lögregluvald þegar nám lögreglumanna er á háskólastigi til tveggja ára?
„Við erum auðvitað að reyna að laga þetta og þetta mun breytast hratt núna með nýútskrifuðum lögreglumönnum úr Háskólanum. Við erum að sjá núna að á hverju ári munu útskrifast fjörutíu nýir lögreglumenn, en áður en þetta nám fór í gagnið að þá voru það tuttugu lögreglumenn annað hvert ár. Þannig að auðvitað erum við að fara sjá fljótlega allt aðra mynd og möguleika á að ráða einungis og vonandi einungis menntaða lögreglumenn til starfa,“ segir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra.
Greiningardeild ríkislögreglustjóra og Landssamband lögreglumanna hafa greint frá því að menntaðir lögreglumenn þurfa að lágmarki að vera 860, tæplega 250 fleiri en nú er. Stjórnvöld hafa aukið fjármagn til löggæslu um sex milljarða á síðustu árum.
„Lögregluráð er eitt af þeim atriðum sem ég kem hér á fót til þess að lögreglustjórar landsins, ásamt ríkislögreglustjóra og héraðssaksóknara, ræði saman um þörfina. Hvar er hægt að gera betur. Er einhverstaðar staða í kerfinu þar sem við getum nýtt fjármunina betur. Eigum við að forgangsraða öðruvísi og hvar er þá mesta vöntunin. Þær upplýsingar vill ég fá úr nýskipuðu lögregluráði,“ segir Áslaug.