Systurnar þrjár eru tvíburasysturnar Freyja og Oddný Benónýsdætur, sem eru 17 ára og hálfsystir þeirra, Margrét Ósk Guðjónsdóttir, sem verður 12 ára í næsta mánuði. Pabbi Margrétar og fósturpabbi tvíburanna, Guðjón Halldór Óskarsson spilar undir hjá þeim. Þau tvö lög, sem fjölskyldan hefur sett inn á Facebook í samkomubanninu hafa heldur betur slegið í gegn.
Fyrst var það lagið „Undir þínum áhrifum“ með Sálinni hans Jóns míns og svo lagið „Með þér með Bubba Mortens. Stelpurnar hafa fengið yfir 60 þúsund áhorf á myndböndin. En áttu þær von á þessum viðbrögðum?
„Nei, alls ekki, þetta átti bara að vera handa ömmu,“ segir Freyja og Oddný bætir við; „Það er bara mjög gaman að gleðja alla á þessum erfiðum tímum.

Systrunum hafa borist mikið af þakkarkveðjum fyrir sönginn og meira að segja fallegar teikningar með póstinum.
„Já, við fengum teiknaðar myndir frá einni stelpu, sem heitir Una. Hún gerði fallegar myndir fyrir okkur, við ætlum bara að þakka fyrir þær, takk fyrir,“ segir Oddný.
Von er á fleiri myndböndum á Facebook frá systrunum á meðan samkomubannið stendur yfir.