Töluvert mikið framboð af lausum veiðileyfum Karl Lúðvíksson skrifar 22. ágúst 2020 10:03 Það hefur verið mikið um afbókanir í laxveiðiárnar vegna breyttra reglna um skimun og sóttkví við komuna til landsins.
Þegar breyttar reglur um skimun og sóttkví tóku gildi var ljóst að þeir erlendu veiðimenn sem ætluðu sér að taka þátt í síðsumarsveiðinni eru fæstir að koma. Það er töluverður fjöldi erlendra veiðimanna farinn að sækja í síðsumars veiðina á Íslandi sem og haustveiðina einfaldlega af þeirri ástæðu að leyfin eru ódýrari en á aðaltímanum en líka að þá er mesti möguleikinn á að setja í stórlaxa. Eftir að reglur um skimun tóku gildi hefur verið mikið um afbókanir og þess er skemmst að minnast að 52 stangir afbókuðu sig í Miðfjarðará og er leigutökum ánna ekki skemmt. Það hefur töluvert borið á auglýsingum á lausum veiðileyfum á vefnum síðustu daga og þar má til dæmis nefna Ytri og Eystri Rangá, Fossá, Langá, Laxá í Dölum, Tungufljót, Laxá í Leirársveit og Skógá bara svo einhverjar séu nefndar en þær eru mun fleiri árnar sem hafa fengið afbókanir. Leigutakar hafa í mörgum tilfellum gefið ríflega afslætti af þessum stöngum og besta tilboðið sem við höfum séð hingað til hefur verið í Ytri Rangá þar sem 50% afsláttur hefur verið boðinn fyrir lausar stangir þar vegna norðmanna sem forfölluðust. Þetta er líklega óskastaða Íslenskra veiðimanna því nú er hægt að skoða leyfi á verðum sem sjást ekki oft og það eru örugglega margir farnir að hugsa sér til hreyfings sem eru ekki búnir að veiða nóg í sumar.
Stangveiði Mest lesið Fiskvegur skal gerður fyrir ísaldarurriðann Veiði Talið niður í gæsaveiðina Veiði Veiðigoðsögnin Völundur Þorsteinn er látinn Veiði Yfir 1000 laxar gengnir í Elliðaárnar Veiði Stefnir í kuldalega veiðiopnun Veiði Yfirlýsing frá Skotvís vegna rjúpnaveiða í Húnaþingi vestra Veiði Gekkstu vel frá veiðidótinu þínu? Veiði 44 laxar á land á fyrsta degi í Miðfjarðará Veiði Guðrún er staðalbúnaður í hverri veiðiferð Veiði Fyrsti laxinn úr Mýrarkvísl Veiði