Söfnum Reykjavíkurborgar verður lokað frá og með deginum í dag til og með 19. október. Er það gert í ljósi hertra sóttvarnaraðgerða vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar.
Í tilkynningu á vef borgarinnar kemur fram að ekki hafi verið farið fram á lokun safna í nýrri reglugerð heilbrigðisráðherra. Þó sé ljóst að fjöldatakmarkanir og nálægðarmörk hefðu haft mikil áhrif á starfsemina. Staðan verði því endurmetin að tveimur vikum liðnum.
„Söfn borgarinnar eru: Borgarbókasafnið, sem er á sex stöðum í borginni, Listasafn Reykjavíkur í Hafnarhúsi, á Kjarvalsstöðum og í Ásmundarsafni auk safna undir hatti Borgarsögusafns sem eru Sjóminjasafn Reykjavíkur, Landnámssýningin við Aðalstræti, Árbæjarsafn og Ljósmyndasafn Reykjavíkur.
Góð aðsókn innlendra gesta hefur verið á söfn borgarinnar undanfarna mánuði og verður tíminn framundan meðal annars nýttur til að skipta út einstaka sýningum, huga sérstaklega að safneign, og öðru innra starfi.
Enn meiri áhersla verður lögð á að sinna nærsamfélagi safnanna næstu misseri og hlakkar starfsfólk til að taka á móti gestum sínum aftur er söfnin verða opnuð að nýju.
Gildistími Menningarkorta Reykjavíkur og bókasafnsskírteina framlengist um sem nemur lokun safna og ekki verða lagðar sektir á safnkost Borgarbókasafns á tímabilinu,“ segir í tilkynningunni.