Rafíþróttir

Mikið í húfi í lokaumferðinni í kvöld

Sindri Sverrisson skrifar
Dusty hefur þegar tryggt sér deildarmeistaratitilinn.
Dusty hefur þegar tryggt sér deildarmeistaratitilinn.

Þrjú lið eiga enn á hættu að fylgja Exile niður úr Vodafonedeildinni í Counter-Strike en lokaumferðin fer fram í kvöld.

Leikir kvöldsins:

Þór - GOAT

KR - Exile

HaFiÐ - Dusty

XY - Fylkir

Bein útsending hefst á Stöð 2 eSport kl. 19.15.

Dusty hefur þegar tryggt sér deildarmeistaratitilinn og strákarnir sem tryggðu Fylki Íslandsmeistaratitilinn í sumar, en skiptu svo yfir til Dusty, halda því áfram að bæta við verðlaunasafn sitt.

Fjögur efstu lið deildarinnar eru örugg um sæti í stórmeistaramóti Vodafone nú í haust, en það eru Dusty, KR, Hafið og Fylkir. Öll önnur lið á landinu geta svo tekið þátt í opnu móti og barist um fjögur laus sæti fyrir áskorendur á stórmeistaramótinu.

Staðan fyrir lokaumferðina.

GOAT, Þór og XY eiga öll á hættu að falla úr Vodafonedeildinni í kvöld. Exile er þegar fallið og GOAT er sem stendur í næstneðsta sæti, en jafnt Þór og XY að stigum.

Fjórir möguleikar eru fyrir lokaumferðina, varðandi það hvaða lið fer í fallumspilið:

Möguleiki A: GOAT vinnur Þór og XY vinnur Fylki. GOAT og XY enda þá með 10 stig en Þór með 8 og fer í umspil.

Möguleiki B: GOAT vinnur Þór og Fylkir vinnur XY. GOAT endar þá með 10 stig, Þór og XY með 8. Þór er yfir 2-0 innbyrðis gegn XY og XY fer í umspil.

Möguleiki C: Þór vinnur GOAT og XY vinnur Fylki. Þór og XY enda þá með 10 stig en GOAT með 8 og fer í umspil.

Möguleiki D: Þór vinnur GOAT og Fylkir vinnur XY. Þór endar þá með 10 stig en XY og GOAT með 8. XY er yfir 2-0 innbyrðis gegn GOAT sem fer þá í umspil.






×