Rooney vildi fara til Barcelona og segir að hann hefði passað fullkomlega með Messi, Xavi og Iniesta Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 24. nóvember 2020 15:31 Wayne Rooney og Lionel Messi í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu 2011 þar sem Barcelona sigraði Manchester United, 3-1. Rooney og Messi skoruðu báðir í leiknum. getty/Corbis
Wayne Rooney segir að hann hafi viljað fara til Barcelona þegar hann óskaði eftir því að verða seldur frá Manchester United 2010. Í hlaðvarpi United sagði Rooney að Real Madrid hefði sýnt sér mikinn áhuga en Barcelona hefði verið draumafélagið. Á þessum tíma var Barcelona undir stjórn Peps Guardiola og Rooney segir að hann hefði passað vel inn í liðið með leikmönnum á borð við Lionel Messi, Xavi og Andrés Iniesta. „Á þessum tíma var ég tilbúinn að fara og spila á Spáni. Ég hefði helst viljað fara til Barcelona en Real Madrid var líklegri. Chelsea var einnig inni í myndinni,“ sagði Rooney. „Ég man eftir því að hafa hugsað með mér hvernig væri að spila í þessu liði með Messi, Xavi og Iniesta. Á þessum tíma var Messi ekki að spila þar sem hann spilar núna heldur úti á kanti. Ég hefði passað fullkomlega inn í liðið.“ Þrátt fyrir áhuga annarra liða endaði Rooney á að skrifa undir nýjan fimm ára samning við United haustið 2010. Hann lék með United til 2017 og er markahæsti leikmaður í sögu félagsins. United og Barcelona mættust í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu undir lok tímabilsins 2010-11 þar Börsungar höfðu sigur, 3-1. Rooney skoraði mark United.
Enski boltinn Mest lesið Vandræði KR við nýja völlinn: „Hér var bara mýri og ruslahaugur“ Íslenski boltinn Leik lokið: Stjarnan - Grindavík 108-100 | Stjarnan skrefinu á undan Körfubolti Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 100-78 | Ótrúlegur sigur Stólanna Körfubolti Uppgjörið: Þór/KA - Tindastóll 2-1 | Endurkoma í Boganum Íslenski boltinn Forest upp í þriðja sætið eftir sigur á Tottenham Enski boltinn Leik Alberts og öllum öðrum á Ítalíu frestað vegna andláts páfa Fótbolti Segir að Alexander-Arnold eigi ekki að byrja fleiri leiki ef hann er á förum Enski boltinn Valur og KR unnu Scania Cup Körfubolti Uppgjörið: FHL - Valur 0-2 | Valskonur sóttu þrjú stig austur Íslenski boltinn Liverpool gæti orðið meistari strax á miðvikudag Enski boltinn Fleiri fréttir Burnley og Leeds United aftur upp í ensku úrvalsdeildina Forest upp í þriðja sætið eftir sigur á Tottenham Alfons með sitt fyrsta mark fyrir Birmingham Segir að Alexander-Arnold eigi ekki að byrja fleiri leiki ef hann er á förum Liverpool gæti orðið meistari strax á miðvikudag Saka ekki alvarlega meiddur Slot sáttur fyrir hönd Trent Alexander-Arnold „Vinnur ekki leiki ef þú skorar ekki“ Trent tryggði sigurinn gegn lánlausu liði Leicester Úlfarnir unnu United aftur Frestuðu fögnuði Liverpool með sýningu Neto hetja Chelsea á síðustu stundu Krakkarnir sem gætu fengið sénsinn hjá Amorim Meiddur Ramsey stýrir Cardiff út tímabilið Guardiola segir Meistaradeildarsæti vera nóg Dýrlingarnir nældu í stig og jöfnuðu slakasta árangur sögunnar Stórsigur Villa galopnar baráttuna um Meistaradeildarsæti City nálgast sæti í Meistaradeild Evrópu Leeds og Burnley skrefi nær ensku úrvalsdeildinni James missir af mikilvægum leikjum meðan Chelsea eltir fernuna „Því miður verðið þið að þola mig aðeins lengur“ Fjöldi stuðningsmanna Man. United fór of snemma af vellinum í gærkvöldi Arne Slot: Samningarnir við Van Dijk og Salah sýna okkar metnað Ætlar að nota krakka í síðustu leikjum Man. United í ensku deildinni Van Dijk fær 68 milljónir á viku Hálf úrvalsdeildin á eftir Delap Van de Ven: Tottenham vill vinna Evrópudeildina fyrir Postecoglou Van Dijk skrifaði undir nýjan samning við Liverpool Newcastle upp í þriðja sætið Onana byrjar gegn Lyon en tímabilinu lokið hjá Zirkzee Sjá meira