Fréttablaðið greinir frá þessu í dag þar sem rætt er við Ingvar Smára Birgisson, lögmann eCommerce. Hann segir meiðyrði ekki bundin við það að þau séu sett fram á vef- eða fjölmiðlum, heldur geti einnig verið um meiðyrði að ræða þegar ritað er í lokuðum hópum á Facebook, spjallrásum eða tölvupósti.
Af hálfu eCommerce er þess krafist að ummælin verði dæmd dauð og ómerk. Þá fer fyrirtækið fram á skaðabætur upp á aðra milljón króna og birtingu leiðréttingar á ummælunum.
Neytendasamtökin hafa gagnstefnt eCommerce í málinu og krafist einnar milljónar króna vegna ofgreidds kostnaðar, en samtökin fengu kröfuna framselda frá einstaklingi sem taldi sig hafa ofgreitt.

Umsvifamikið á smálánamarkaði
Smálánafyrirtækið eCommerce bauð upp á smálán í gegnum fyrirtækin 1909, Hraðpeninga, Kredia, Múla og Smálán.
Málefni eCommerce voru töluvert til umfjöllunar í fjölmiðlum sumarið 2019 eftir að Brynhildur Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna, sagðist ekki geta ráðlagt neytendum að stunda viðskipti við fyrirtækið. Hafði hún efasemdir um að lántökukostnaður viðskiptavina yrði innan löglegra marka, en fyrirtækið hafði þá lækkað vexti niður í hæstu leyfilegu vexti.
Í ágúst á síðasta ári úrskurðaði Neytendastofa svo að fyrirtækið hefði brotið gegn ákvæðum laga um neytendalán með innheimtu kostnaðar af neytendalánum sem nam hærri árlegri hlutfallstölu kostnaðar en 50% að viðbættum stýrivöxtum. Þá hafi upplýsingagjöf í eyðublaði sem fylgdi lánum og lánssamningum verið ófullnægjandi.
Fyrirtækið mótmæli úrskurðinum og sagðist ósammála því að íslensk lög myndu gilda um smálánasamninga. Var því ákveðið að áfrýja úrskurðinum til áfrýjunarnefndar neytendamála.
Áfrýjunarnefnd neytendamála staðfesti svo úrskurð Neytendastofu í vor.