Aðgerðir á tímum Covid Hermann Ingi Gunnarsson skrifar 21. desember 2020 13:31 Margir hagsmunahópar hafa blandað sér í umræðuna um landbúnaðarmál og matvælaverð sem hefur verið ofarlega á baugi á liðnum dögum. Þar hafa sérhagsmunaöfl innflytjenda reynt að kasta rýrð á mikilvægi þess að standa vörð um fæðuöryggi og innlendan landbúnað og atvinnugreinina sem slíka. Atvinnugreinin á undir högg að sækja um þessar mundir vegna covid. Almennar aðgerðir munu ekki koma til móts við þær aðstæður sem eru á markaði og þess vegna leggur ríkisstjórnin fram tillögur sem eru í takt við aðgerðir annarra þjóða til að verja innlenda framleiðslu. Undir áróður Félags atvinnurekenda hafa Neytendasamtökin og ASÍ að einhverju leyti tekið, sem að mínum dómi er einkennilegt. Í landbúnaði starfa gríðarlega margir félagsmenn aðildarfélaga ASÍ. Er það hagur þessara félagsmanna að störf flytjist úr landi til landa þar sem laun og réttindi eru ekki ásættanleg á okkar mælikvarða ? Einhver verkalýðsfélög hafa kallað svona félagslegt undirboð. Neytendasamtökin virðast svo ekki hafa mikinn metnað fyrir því að fylgjast með verðmyndun á markaði því með þessari nýju aðferð við útboð á tollkvótum sem tekin var hér upp á árinu þá hefur, eins og kemur fram í greiningu Landsambands kúabænda, álagning innflytjenda hækkað, enda hafa innfluttar matvörur hækkað meira en íslensk matvæli. Þetta kemur fram í skýrslu sem ASÍ vann fyrir atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið sem ber heitið, Verðkönnun á innlendum og innfluttum landbúnaðarvörum, Desember 2019 – September 2020. Á því tímabili kemur fram að gengi krónunnar veiktist um 16,7%. Helstu niðurstöður skýrslunnar, eins og kemur fram í kynningu á heimasíðu ráðuneytisins, eru annars vegar að verð á innfluttum landbúnaðarvörum hafi í sumum tilfellum hækkað meira en verð á innlendum matvælum. Hins vegar að framboð hafi aukist, eða eins og þar segir: „Framboð eða úrval á þeim landbúnaðarvörum sem könnunin náði til hefur aukist töluvert á tímabilinu, bæði er varðar innfluttar og innlendar vörur. Framboð á innfluttum vörum jókst verulega í mörgum vöruflokkum, mest á innfluttu svínakjöti og fuglakjöti, en framboð af nautakjöti og ostum jókst einnig mikið. Framboð innlendra vara virðist í flestum tilvikum aukast á sama tíma.“ Aðferðafræðin ein og sér vekur margar spurningar. Hvernig var hægt að draga þá ályktun að framboð hafi aukist þegar ekki liggur fyrir framboð fyrri ára. Getur verið að árstíðabundið framboð á vöru sé að hafa áhrif á fjölda vöruflokka? Hvernig var þá birgðastaðan á þeim tveimur tímapunktum sem miðað var við? Verð á innfluttu nauta- og svínakjöti og ostum hækkaði meira en innlendar afurðir Hvað verðþróun varðar sýnir sig að í flestum tilvikum hækkuðu innfluttar vörur meira en innlendar, þó ekki undantekningalaust. Eftirfarandi tafla sýnir nokkrar helstu niðurstöður um verðþróun. Í fyrsta lagi er það athyglisvert að samkvæmt töflunni hækkar verð á innfluttu nautakjöti, svínakjöti og ostum mun meira á tímabilinu en verð á innlendri framleiðslu. Þetta getur varla talist vísbending um að lægri tollar leiði sjálfkrafa til lægra matvöruverðs. Verð á innfluttu grænmeti hækkar miklu meira en verð á innlendu grænmeti Enn athyglisverðara er að samkvæmt skýrslunni hækkar verð á innfluttu grænmeti miklu meira en verð á innlendu grænmeti. Það er ekki síður áhugavert í því ljósi að engar magntakmarkanir eða uppboð á tollkvótum eru þegar kemur að innflutningi þessara vara. Raunar eru þær flestar með öllu tollalausar allt árið eða stærstan hluta þess. Innfluttar vörur hækkuðu sem sagt um 10─26% á þessum tíma á meðan verð á íslensku grænmeti fór frá því að hækka um 5% og niður í að lækka um 11%. Breyting á útboðsleið er ekki bara „af því bara“ Meginástæðan fyrir því að ríkið fer í að breyta útboðsleið á tollkvótum er að reyna að draga úr innflutningi á landbúnaðarafurðum. Covid hefur gert það að verkum að hér vantar 2 milljónir ferðamanna til þess hesthúsa hvorttveggja innlendu og innfluttu matvælin. Markaðir hér á landi eru yfirfullir af landbúnaðarafurðum sem hefur leitt til mikils verðfalls á verði til bænda. Það verðfall hefur eingöngu orðið því það er erfiðara að koma vöru inn á markað. Með því að minnka innflutning freistast ríkið til að slá á þá spennu sem er á markaðnum og þar af leiðandi draga úr verulegu tekjufalli bænda. Ég blæs á þá fullyrðingu að sú breyting á útboðsreglum á tollkvótum muni snarhækka vöruverð, innflytjendur geta með auðveldum hætti dregið úr sinni álagningu og tekið á sig sams konar högg á markaði líkt og bændur eru að gera. Það er ekkert lögmál að innflytendur og smásalar þurfi að hafa fasta álagningu á sínum vörum enda samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar um afkomu eftir atvinnuvegum var svokallaður vergur rekstrarafgangur (EBIDTA) í heild- og smásölu árið 2017 liðlega 67 milljarðar króna. Þetta næstum tvisvar sinnum meiri vergur rekstrarafgangur en í sjávarútvegi hér á landi. Á tímum sem þessum þurfa allir að taka á sig samdrátt í tekjum, það hafa bændur gert svo um munar og það geta innflytendur gert líka þannig að það bitni ekki á neytendum. Höfundur er stjórnarmaður í Bændasamtökum Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Hermann Ingi Gunnarsson Landbúnaður Skattar og tollar Matvælaframleiðsla Mest lesið Falsfréttastjóri RÚV dýpkar holuna sína Einar Steingrímsson Skoðun Ákall um breytingar Gissur Freyr Gissurarson Skoðun Ekki er allt sem sýnist Ólafur Helgi Marteinsson Skoðun Laun kvenna og karla Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,Steinunn Bragadóttir Skoðun Skóli án aðgreiningar: Hentar ýktasta mynd skólastefnunnar öllum börnum? Jóna Sigríður Valbergsdóttir Skoðun Vanfjármögnun vísindanna Magnús Hallsson,Styrmir Hallsson Skoðun Hvernig talar maður við tölvur og hafa vélar rökhugsun? Henning Arnór Úlfarsson Skoðun Þegar barn óttast önnur börn Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Verkin sem ríkisstjórnin verður dæmd af Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun Hrynur sjávarútvegur? Stefán Ólafsson Skoðun Skoðun Skoðun Ekki er allt sem sýnist Ólafur Helgi Marteinsson skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar: Hentar ýktasta mynd skólastefnunnar öllum börnum? Jóna Sigríður Valbergsdóttir skrifar Skoðun Vilji til að rjúfa kyrrstöðu í húsnæðiskreppunni Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Grænt ál frá Íslandi er mikilvægt fyrir sjálfstæða Evrópu Guðríður Eldey Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar barn óttast önnur börn Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Falsfréttastjóri RÚV dýpkar holuna sína Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Ákall um breytingar Gissur Freyr Gissurarson skrifar Skoðun Veit sem sagt Grímur betur? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig talar maður við tölvur og hafa vélar rökhugsun? Henning Arnór Úlfarsson skrifar Skoðun Laun kvenna og karla Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,Steinunn Bragadóttir skrifar Skoðun Verkin sem ríkisstjórnin verður dæmd af Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Open Letter to new HÍ Rector re Disability Support Hópur starfsfólks og nemenda við HÍ skrifar Skoðun Vanfjármögnun vísindanna Magnús Hallsson,Styrmir Hallsson skrifar Skoðun Kárhóll og Kína: Þegar vísindi verða pólitísk tól Davíð Michelsen skrifar Skoðun Mál Ásthildar Lóu Þórsdóttur – Hvernig manneskjur viljum við vera? Hulda Steingrímsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórn gegn fjölskyldusameiningum? Þorbjörg Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Lýðræðið deyr í myrkrinu Heiðar Örn Sigurfinnsson skrifar Skoðun Færni til framtíðar Álfheiður Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ofbeldi Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Lestu Gaza Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir skrifar Skoðun Ný fjármálaáætlun - tækifæri til að efna loforðin um bætt geðheilbrigði Sandra B. Franks skrifar Skoðun 10 ár og bull í lokin Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Opið bréf til atvinnuvegaráðherra: 48 daga, nei takk Gísli Gunnar Marteinsson skrifar Skoðun Á nú að opinbera það að ég veit í rauninni ekki neitt? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar Skoðun Háskóli Höfuðborgarinnar, ekki Íslands Arent Orri Claessen,Gunnar Ásgrímsson skrifar Skoðun Hrynur sjávarútvegur? Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Iftar, agape og Eid: Kristnir og múslimar við sama borð Hilal Kücükakin Kizilkaya,Sigurvin Lárus Jónsson skrifar Skoðun Bætt skipulag fyrir stúdenta Aðalsteinn Haukur Sverrisson ,Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Frá sögulegum minjum til sviðsettrar upplifunar: Um sanngildi og Disneyvæðingu Sólheimasands Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Staðan á húsnæðismarkaði: Offramboð af röngu meðaltali Egill Lúðvíksson skrifar Sjá meira
Skóli án aðgreiningar: Hentar ýktasta mynd skólastefnunnar öllum börnum? Jóna Sigríður Valbergsdóttir Skoðun
Skoðun Skóli án aðgreiningar: Hentar ýktasta mynd skólastefnunnar öllum börnum? Jóna Sigríður Valbergsdóttir skrifar
Skoðun Grænt ál frá Íslandi er mikilvægt fyrir sjálfstæða Evrópu Guðríður Eldey Arnardóttir skrifar
Skoðun Open Letter to new HÍ Rector re Disability Support Hópur starfsfólks og nemenda við HÍ skrifar
Skoðun Mál Ásthildar Lóu Þórsdóttur – Hvernig manneskjur viljum við vera? Hulda Steingrímsdóttir skrifar
Skoðun Ný fjármálaáætlun - tækifæri til að efna loforðin um bætt geðheilbrigði Sandra B. Franks skrifar
Skoðun Iftar, agape og Eid: Kristnir og múslimar við sama borð Hilal Kücükakin Kizilkaya,Sigurvin Lárus Jónsson skrifar
Skoðun Frá sögulegum minjum til sviðsettrar upplifunar: Um sanngildi og Disneyvæðingu Sólheimasands Guðmundur Björnsson skrifar
Skóli án aðgreiningar: Hentar ýktasta mynd skólastefnunnar öllum börnum? Jóna Sigríður Valbergsdóttir Skoðun