Rafíþróttir

Bein útsending: Fylkir og Þór takast á í Counter Strike

Samúel Karl Ólason skrifar
Í Vodafone deildinni er keppt í rafíþróttum.
Í Vodafone deildinni er keppt í rafíþróttum.

Vodanfone deildin hefst í kvöld þegar keppt verður bæði í Counter Strike: Global Offensive og League of Legends. Fylkir og Þór Akureyri etja kappi í CSGO og þrjú lið keppa í LoL.

Hér að neðan má fylgjast með viðureign Fylkis og Þórs, sem er sýnd í beinni útsendingu á Stöð 2 eSport. Leikurinn hefst klukkan 19:45 og stendur yfir til ellefu.

Klippa: Vodafone deildin - Fylkir vs. Þór Akureyri

Viðureign KR og FH í LoL má sjá hér á Twitch.

Viðureignir Fylkis og Turboapes United annars vegar og Samnio eSports og Tindastóls verða hinsvegar sýndar á morgun.

Mikið um að vera fram á sumar

Sýnt verður frá öllum viðureignum á miðvikudögum á meðan spilað er í Vodafone deildinni og hefjast útsendingarnar klukkan 19:30. Útsendingunni stýra Kristján Einar Kristjánsson og Tómas Jóhannsson betur þekktir sem Monty! Og Izedi í rafíþróttaheiminum, en þeir hafa mannað lýsendaborðið síðasta árið.

Hægt verður að fylgjast með útsendingum á Twitch rás RÍSÍ eins og áður en einnig mun vera hægt að horfa í gegnum Vísi og í opinni dagskrá á Stöð 2 esport, nýstofnaðri rás sem mun sýna frá bæði innlendum og erlendum rafíþróttum.

Samantektarþáttur þar sem farið er yfir hasarinn úr öllum leikjum vikunnar fer síðan í loftið beint eftir síðasta leik á miðvikudegi og er sýndur aftur á fimmtudegi fyrir þá sem misstu af honum í beinni. Í gær fór í loftið upphitunarþáttur sem hægt er að horfa á hér.

Hér má sjá frekari upplýsingar um hvernig keppnisfyrirkomulagið verður fram á sumar.


Tengdar fréttir






×