Meðeigandi Jóns og stofnandi er Kjartan Þórisson. Í gegnum bókunarkerfin þeirra, Tímtal og Noona appið panta viðskiptavinir sér tíma í alls konar þjónustu.
Allt hófst þetta sem hugmynd þegar félagarnir voru í námi í HR. Þrátt fyrir að komast þar báðir á forsetalista tækni- og verkfræðideildar HR fór svo að þeir hættu í námi til að einbeita sér alfarið að rekstrinum. En nú er stefnt að opnun Noona í tveimur erlendum borgum.
Tímatal ehf. var stofnað árið 2014 og er því eitt þeirra nýsköpunarfyrirtækja sem varð til fljótlega eftir bankahrun. Hjá fyrirtækinu starfa nú sex starfsmenn og er gert ráð fyrir vaxandi umsvif næstu misseri.
Að lifa í núinu
Jón Hilmar segir þá Kjartan mjög meðvitaða um að njóta lífsins og lifa í núinu. Þótt vel hafi gengið í HR var námið ekki að gefa þeim þá fyllingu sem þeir sóttust eftir.
Fyrsta árið í skólanum hafði ekki beint fyllt líf okkar af lit og sjarma, og sáum við ekki fram á miklar breytingar á því ári sem framundan var. Við leggjum báðir áherslu á að lifa merkingarfullu lífi og sáum við fram á að það yrði mun meira gefandi að vinna saman heldur en að læra saman.“
Kjartan hafði þá þegar farið af stað með hugmyndina á bakvið upphafið, sem var bókunarkerfið Tímatal.
Síðsumars 2017 bauð hann Jóni að ganga til liðs við sig.
„Við höfðum nefnilega áður prófað að reka fyrirtæki saman í Verzló, sem var reyndar algjört klúður. En hvorugur okkar hafði gleymt því hve gefandi og gaman það hafði verið,“ segir Jón.
Það sem bókunarkerfin Tímatal og Noona appið gera er að viðskiptavinir geta sjálfir bókað tíma í klippingu, hjá snyrtistofum, í nudd, á verkstæði, hjá dýralækni og fleirum.
Kerfin spara þjónustuaðilum tíma og fyrirhöfn, ekki síst í símsvörun og utanumhald yfir bókanir eða tilfærslur á tímum.
Þá sjá viðskiptavinir hvaða þjónusta er í boði, verðlista, hvaða þjónustuaðili er laus, hvað þeir hafa keypt áður og fleira og eru minntir á bókaða tíma með SMS.
Jón segir hugmyndina hafa komið til þannig að eigandi hárgreiðslustofunnar Sjoppan bað Kjartan um að smíða fyrir sig tímabókunarkerfi. Kjartan var þá 18 ára gamall og hungraður í hvaða verkefni sem er. Að sögn Jóns var hann því fljótur að stökkva til og þáði verkefnið glaður.
„Í kjölfarið gerði Kjartan það að vana sínum að fara niður til Sjoppunnar og forrita samhliða því að fylgjast með rekstrinum þeirra. Eftir fyrstu útgáfu hélt Kjartan áfram í þrjú ár að betrumbæta Tímatal sem hliðarverkefni samhliða skóla og öðrum verkefnum,“ segir Jón.
Hann viðurkennir samt að tíminn þar sem félagarnir voru báðir í rekstrarverkfræðinni í HR og að vinna í fyrirtækinu, hafi verið álagstími.
Við lentum báðir á forsetalista fyrir námsárangur, en á þeim tímapunkti vorum við líka orðnir ansi slitnir. Innst inni vissum við alveg hvað við vildum gera, svo að lokum ákváðum við, þvert á óskir fjölskyldumeðlima, að hætta í skóla. Þeirri ákvörðun sjáum við sem betur fer ekki eftir í dag.“

Í dag starfa sex manns hjá Tímatal, Gunnar Torfi og Óskar Helgi forrita, Rán Ísold hannar og Hafsteinn Björn sér um fjármál og viðskiptavini.
„Þau eiga öll hluti eða kauprétti í félaginu, enda langar okkur að allir teymismeðlimir séu með sterkan hvata til að gera sína bestu vinnu. Þar að auki eiga þau það einfaldlega bara skilið,“ segir Jón og tekur fram að það hafi alltaf verið sýn hans og Kjartans að fagna ekki einir ef dæmið gengi upp.
Rótgróin fyrirtæki svifasein
Jón segir flesta þekkja Noona frekar en kerfið sem á undan kom, Tímatal. Hann segir að Noona hefði aldrei orðið til nema fyrir þær sakir að fyrst var Tímatal þróað.
„En þrátt fyrir að hafa byrjað á Tímatal, þá var Noona alltaf draumurinn. Og þegar við vorum komnir með um 100 þjónustufyrirtæki í viðskipti á Tímatal ákváðum við að byrja að vinna í áttina að þeim draumi,“ segir Jón og bætir við:
„Við bókuðum þá fundi með stærstu tæknifyrirtækjunum hérlendis til að leita að samstarfsaðila sem gat smíðað það fyrir okkur því Kjartan hafði aldrei áður smíðað app fyrir snjallsíma.
Á einum af þeim fundum komumst við alveg óvart að því að eitt þeirra, líklegast það besta, var að skipuleggja að smíða sína eigin útgáfu af Noona.“ Jón segir að á þessum tíma hafi þeir ekki mikið verið að drífa sig en að heyra af þessu verkefni, var gott spark í rassinn.
Við vissum að við hefðum ekki tíma til að finna og setja upp samstarf með stóru fyrirtæki sem hreyfði sig hægt. Við þurftum einhvern sem gat búið til Noona núna,“
segir Jón og hlær.
„Svo, við fórum að leita að einhverjum sem gat smíðað frábæra lausn á stuttum tíma, og vorum svo heppnir að þekkja Gunnar Torfa. Eftir eina kvöldstund saman var það augljóst að við hefðum sömu hugmyndir, prinsipp og eldmóð og létum vaða. Rúmum 6 mánuðum seinna gáfum við út Noona.“
Jón segir að í kjölfarið hafi ónefnt tæknifyrirtæki slökkt á sinni samkeppnisvöru, sem þá hafði fengið að lifa látlausu lífi í um það bil ár.
Netflix kynslóðin er „Noona“
Jón segir að upphaflegt nafn Noona hafi verið Tímatorg. En eftir smá umhugsun fannst þeim nafnið of íslenskt, enda framtíðarsýnin að fara í útrás.
Á þeim tíma vorum við að taka okkur fyrstu skref í hugleiðslu, og snérust mikið af okkar samræðum um mikilvægi þess að "lifa í núinu". Þar að auki vorum við meðvitaðir um að okkar eigin Netflix kynslóð vill alltaf fá allt núna. Allt á að vera „on-demand,“
segir Jón.
Kjartan kom þá með nafnið „Noona“ og segir Jón að þeim félögum hafi líka þótt gaman að geta notað nafnið í tali. Til dæmis með því að segja „Lífið er Noona.“
Rán Ísold hannaði síðan vörumerkið sem Jón segir að sínu mati eitt flottasta vörumerki landsins.

„Noona“ fer út í heim
Eins og fyrr segir, er stefnt að því að opna Noona í fyrstu erlendu borgunum á þessu ári.
Framtíðarsýn Noona nær langt umfram landsteinana. Við erum gífurlega ánægðir með þá vöru sem við höfum þróað og okkur langar að sjá hana í höndunum á fleiri þjónustuveitendum og þeim sem hjá þeim bóka um allan heim. Við teljum sömuleiðis vera mikla vöntun eftir vöru eins og Noona, en margar stofur í öllum heimshornum treysta enn á bók og síma til að taka við tímabókunum sem er ekki bara óskilvirkt, heldur mjög pirrandi fyrir starfsmenn stofanna.“
Jón segir fyrirtækið enn ungt og að starfshópurinn sé meðvitaður um að margt er ólært enn.
„Hingað til hefur þessi vegferð kennt okkur nánast allt sem við kunnum og það er rétt svo núna sem við sjáum glitta í tækifærið að taka þetta út.“
En ef stefnan er alþjóðlegi markaðurinn hefur það þá aldrei komið til tals að fá til liðs við ykkur fjárfesta?
„Vonandi munum við hafa eitthvað skemmtilegt um þetta að segja bráðlega, en þangað til að öll smáatriðin eru á hreinu þá ætla ég ekki að segja of mikið,“ svarar Jón íbygginn á svip.