Viðskipti erlent

Trump hótar Kín­verjum 50 prósenta viðbótartolli

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Donald Trump sýndi tollaáform Bandaríkjanna á stóru spjaldi. 
Donald Trump sýndi tollaáform Bandaríkjanna á stóru spjaldi.  Getty

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur hótað því að leggja 50 prósenta viðbótartoll á innflutning frá Kína, nema kínversk stjórnvöld dragi til baka mótaðgerðir sem þau kynntu í síðustu viku.

Hótun um viðbótartoll kæmi ofan á 34 prósenta toll sem Trump kynnti á kínverskar vörur í síðustu viku. Sá tollur bættist við að lágmarki 20 prósenta toll sem Hvíta húsið hafði þegar sett á í janúar. Verði þessir tollar að veruleika gætu bandarísk fyrirtæki þurft að greiða yfir 100% toll af vörum frá Kína – sem myndi þannig tvöfalda kostnað innflytjenda á örfáum mánuðum.

Trump hefur áður brugðist við mótaðgerðum með stórum og harkalegum hótunum. Þannig hótaði hann til að mynda að leggja 200% toll á áfengi frá Evrópu og 50% toll á stál og ál frá Kanada. Í báðum tilvikum náðist samkomulag áður en tollarnir tóku gildi.

Það sem greinir málið nú frá fyrri deilum er að þær snerust um langvarandi bandamenn Bandaríkjanna. Kína hefur verið skotmark í viðskiptastefnu Washington löngu áður en Trump tók við embætti.

Þrátt fyrir skýr skilaboð frá Hvíta húsinu um að vilji sé fyrir hendi að ná samkomulagi við Kínverja – bæði um tolla og TikTok – hafa stjórnvöld í Peking hingað til sýnt lítinn áhuga á samningaviðræðum.

Hlutabréfaverð í Bandaríkjunum og um allan heim hefur fallið undanfarna daga eftir tilkynningar Trump um misháa tolla á þjóðir heimsins. Engin breyting varð þar á í dag. Trump hefur kallað eftir því að fólk sýni hvorki veikleikamerki né heimsku sína og lagt áherslu á þolinmæði.

Frétt BBC.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×