Studio Granda hlýtur Hönnunarverðlaun Íslands 2020 fyrir verkefnið Dranga Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 29. janúar 2021 11:40 Studio Granda hlaut Hönnunarverðlaun Íslands 2020 fyrir verkefnið Drangar sem hlotið hefur verðskuldaða athygli. Arkitektarnir Margrét Harðardóttir og Steve Christer tóku við verðlaununum. Aldís Pálsdóttir Hönnunarverðlaun Íslands 2020 voru afhent með rafrænum hætti í dag, 29. janúar. Studio Granda hlaut rétt í þessu Hönnunarverðlaun Íslands 2020 fyrir Dranga.
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra afhenti arkitektunum Margréti Harðardóttir og Steve Christer frá Studio Granda Hönnunarverðlaun Íslands 2020 fyrir verkefnið Drangar. Verðlaunin voru afhent í beinni útsendingu hér á Vísi. Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra afhenti arkitektunum Margréti Harðardóttir og Steve Christer frá Studio Granda Hönnunarverðlaun Íslands 2020 fyrir verkefnið Dranga.Aldís Pálsdóttir Rökstuðningur dómnefndar: „Drangar er metnaðarfullt hönnunarverkefni arkitektastofunnar Studio Granda og afar vel heppnuð birtingarmynd aðkallandi viðfangsefnis arkitekta i nútímasamhengi, endurhugsun og endurnýting gamalla bygginga. Hér er sérstaklega vel útfærð breyting á gömlu sveitabýli og útihúsum í gistihús fyrir ferðamenn. Veðraðar byggingarnar fá að njóta sín og halda útlitslegu yfirbragði með sterkri vísun í sögu og samhengi, en um leið er heildarmynd staðarins styrkt og efld. Dæmi um það er samspil útveggja gistihússins þar sem gömlu veggirnir standa hráir og opnir, án glugga og hurða og mynda áhrifaríkt samspil skugga og takts við nýja veggi. Innra rýmið markast af hlýlegri eik og litum dregið saman milli bygginga og rýma með hlýrri notkun timburs og lita. Mismunandi litatónar og áferð lita eru vísun í fyrri virkni býlisins, til dæmis í lit nautgripa eða gljástig vinnuvéla. Öll efnisútfærsla er sérlega vönduð og tengir rýmin saman í umlykjandi ramma um lífið innan byggingarinnar. Verkið er mikilvægt fordæmi og viðmið í ljósi vaxandi fjölda bygginga, ekki síst á landsbyggðinni, sem kalla á endurskilgreiningu og endurbyggingu vegna aldurs og annars konar nýtingar.“ DrangarNombre del ProyectoDrangarNombre del ProyectoDrangarNombre del ProyectoDrangarNombre del Proyecto Drangar er nýtt gistiheimili byggt á gömlum grunni, staðsett á Snæfellsnesi. Hannað af arkitektastofunni Studio Granda sem var stofnuð af þeim Margréti Harðardóttur og Steve Christer árið 1987. Hér fyrir neðan má sjá myndband um verkefnið, sem framleitt var af Blóð stúdíó fyrir Miðstöð hönnunar og arkitektúrs. Klippa: Hönnunarverðlaun Íslands 2020 - Studio Granda Hönnunarverðlaun Íslands voru veitt í fyrsta sinn árið 2014 og varpa ljósi á mikilvægi og gæðum íslenskrar hönnunar og arkitektúrs, enda er vægi hönnunar í menningu, samfélagi og viðskiptalífi alltaf að aukast. Verðlaunin beina sjónum að því besta sem gert er á sviði hönnunar og arkitektúrs á Íslandi um leið og einstaka hönnuðum eða hópum hönnuða er veitt mikilvæg viðurkenning. Að þessu sinni voru tilnefnd Studio Granda fyrir Drangar, Ýrúrarí fyrir Peysa með öllu og Flotmeðferð frá Flothetta. Í dómnefnd Hönnunarverðlaun Íslands 2020 sátu: Sigríður Sigurjónsdóttir formaður, Hönnunarsafn íslands Hildigunnur Sverrisdóttir, arkitekt, LHÍ Sigrún Unnarsdóttir, fatahönnuður MH&A Þorleifur Gíslason, grafískur hönnuður MH&A Paul Bennett, hönnunarstjóri IDEO, MH&A Margrét Kristín Sigurðardóttir, SI Hörður Lárusson, grafískur hönnuður MH&A Sigrún Birgisdóttir, arkitekt, LHÍ Miðstöð hönnunar og arkitektúrs stendur að verðlaununum, í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands, Listaháskóla Íslands, Landsvirkjun, Íslandsstofu og Samtök iðnaðarins.
Hönnunarverðlaun Íslands Tíska og hönnun Tengdar fréttir Bein útsending: Afhending Hönnunarverðlauna Íslands 2020 Hönnunarverðlaun Íslands árið 2020 verða afhent með rafrænum hætti hér á Vísi klukkan 11.00. 29. janúar 2021 10:00 66°Norður hlýtur viðurkenningu fyrir bestu fjárfestingu í hönnun á Hönnunarverðlaunum Íslands 2020 Hönnunarverðlaun Íslands 2020 voru afhent með rafrænum hætti rétt í þessu. Hönnunarfyrirtækið 66°Norður hlaut þar viðurkenningu fyrir bestu fjárfestingu í hönnun á Hönnunarverðlaununum 2020. 29. janúar 2021 11:20 Mest lesið „Trylltur þynnkuborgari“ slær í gegn á Íslandi og í Svíþjóð Lífið Fréttatía vikunnar: Tenerife, kúabú og KFC Lífið Alec Baldwin með áfallastreituröskun: „Ég er glaðari þegar ég sef“ Lífið „Jákvæð líkamsímynd bjargaði lífi mínu“ Lífið VÆB keppa fyrir hönd Íslands í Eurovision Lífið Tveggja barna miðaldra móðir sem er sjúk í strákinn Gagnrýni Snúist ekkert um hvort börnin eigi íslenska eða erlenda foreldra Lífið Franskur stíll í Sigvaldahúsi í Álfheimum Lífið Stórfjölskyldan setur húsið á sölu Lífið VÆB bræður syngja einir á íslensku: Stílistinn sagði þeim að vera með sólgleraugu Lífið Fleiri fréttir Elín Hall í Vogue „Ég hef alltaf þorað að vera ég sjálfur“ Helen Óttars í alþjóðlegri nærfataauglýsingu Kvenmannsbuxur sem áttu að fara til Chalamet Súrrealískt að ganga tískupallinn á Times Square Þýðingarmikill klæðnaður Kendrick Lamar Rokkaði tíu milljón króna hálsmen Gaman að sjá íslenska hönnun skína í dönsku tískusenunni Tískan við þingsetningu: Snjórinn stoppaði ekki flottheitin Halla forseti rokkar svart og hvítt Best klæddu, flippuðustu og fáklæddustu á Grammy Kaflaskil í tískunni þegar hann var tíu ára Steldu meðgöngustílnum af Tönju Ýr Patrik í hálfrar milljón króna skíðagalla Skemmtilegast klæddu á Golden Globe Halla í peysufötum langömmu sinnar Sjá meira
Bein útsending: Afhending Hönnunarverðlauna Íslands 2020 Hönnunarverðlaun Íslands árið 2020 verða afhent með rafrænum hætti hér á Vísi klukkan 11.00. 29. janúar 2021 10:00
66°Norður hlýtur viðurkenningu fyrir bestu fjárfestingu í hönnun á Hönnunarverðlaunum Íslands 2020 Hönnunarverðlaun Íslands 2020 voru afhent með rafrænum hætti rétt í þessu. Hönnunarfyrirtækið 66°Norður hlaut þar viðurkenningu fyrir bestu fjárfestingu í hönnun á Hönnunarverðlaununum 2020. 29. janúar 2021 11:20