Rikki segir alla benda á De Gea en enginn á Maguire: „Hefur ekki staðið undir verðmiðanum“ Anton Ingi Leifsson skrifar 11. febrúar 2021 07:00 De Gee og Maguire svekktir fyrr á leiktíðinni. Ash Donelon/Getty Ríkharð Óskar Guðnason segir að David de Gea sé á vörum allra en enginn ræði um frammistöðu Harry Maguire í leiknum gegn Everton á laugardag. United glutraði niður forystu í tvígang í leiknum.
Strákarnir í Sportinu í dag ræddu um frammistöðu Manchester United gegn Everton á laugardagskvöldið sem endaði með dramatísku 3-3 jafntefli. Dominic Calvert-Lewin jafnaði á síðustu sekúndu leiksins. „Mér fannst leikurinn á laugardaginn mjög skrýtinn. David de Gea gerði mistök í leiknum og hefði getað komið út á móti í lokamarkinu en ræðir samt enginn fyrsta og þriðja markið; Harry Maguire?“ sagði Rikki og hélt áfram: „Hann er dýrasti varnarmaður heims. Staðsetningin á honum í þriðja markinu er í besta falli vond. Það talar enginn um það. Það er bara bent á David de Gea. Harry Maguire hefur ekki staðið undir sínum verðmiða. Mjög langt frá því.“ Kjartan Atli var ekki sammála Rikka og sagði Kjartan að hann hafi verið ánægður með Maguire hingað til. „Mér finnst Harry Maguire búinn að vera mjög góður á þessu tímabili. Mér finnst hann góður hafsent. Hann veit aldrei hver er fyrir hliðina á sér. Hann er með Lindelöf, Bailly og Tuanzebe á tímabili. Þriggja manna, fjögurra manna,“ áður en Rikki tók aftur við boltanum. „Þú ert með leikinn í teskeið. Everton var bara að elta United. Af hverju ertu að gera skiptingu í uppbótartíma til að hrófla í vörninni? Gæi sem er með ekkert sjálfstraust. Hann brýtur af sér, annars hefði leiktíminn verið búinn,“ sagði Rikki. Umræðuna um United má heyra eftir rúmlega tólf mínútur.
Enski boltinn Mest lesið Sveindís fær engar skýringar: „Ég hef greinilega ekki verið í uppáhaldi“ Fótbolti „Ef þeir fá ekki gul spjöld halda grófu brotin bara áfram“ Fótbolti Martin: „Fór rosalega fyrir brjóstið á mér að heyra það“ Körfubolti Endurkomukóngarnir í Leeds með fimm stiga forskot á toppnum Enski boltinn Valsmenn settu sex gegn Grindavík Íslenski boltinn „Danska“ félagið í MLS sigraði meistarana í fyrsta leik Fótbolti „Erfiðleikar utan vallar“ hafa styrkt spænsku stelpurnar Fótbolti Hélt að „spilling“ þýddi eitthvað annað og dregur ummælin til baka Fótbolti Meistararnir gefa Trump „risastórt nei“ Sport Aftur hópuppsögn hjá Man. Utd Enski boltinn Fleiri fréttir Endurkomukóngarnir í Leeds með fimm stiga forskot á toppnum Aftur hópuppsögn hjá Man. Utd Sturridge vildi að Guardiola setti Haaland inn á í hálfleik Metin sex sem Salah setti í gær Fyrsta barnabarn Cantona heitir Cesar „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ „Spiluðum mjög vel í dag“ „Við þurfum annan titil“ Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Skoruðu fjögur mörk á ellefu mínútna kafla Haaland ekki í hópnum á móti Liverpool Vann Arsenal og tók síðan bara lestina heim Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah „Eigum skilið að finna til“ Asensio hetjan í endurkomu Villa Öruggur sigur Spurs og Wolves vann óvænt Bitlausu liði Arsenal mistókst að minnka forskot Liverpool Moyes: Greinilegt peysutog en við áttum að vera komnir í 3-0 Amorim: Við þurfum að lifa þetta tímabil af Hætti við að dæma víti og United slapp með jafntefli Pulis skellihló er hann gerði grín að íslensku eigendunum Tottenham vill ekki láta kalla sig Tottenham Brentford bætti við algjöra martröð Leicester Ratcliffe þekkti ekki fyrirliða kvennaliðsins Arsenal aldrei aflað meira en tapaði samt þremur milljörðum Hafa verið þrettán ár af lygum „Frábær leikur en ég er ekki ánægður með úrslitin“ Jafntefli niðurstaðan í frábærum leik á Villa Park Kostaði Man. United meira en 2500 milljónir að reka Ten Hag og Ashworth Sjá meira