Bjarni veðjar á fjórtán fjölskyldur Gunnar Smári Egilsson skrifar 8. mars 2021 12:30 Á samfélagsmiðlum má sjá mynd af baksvip Bjarna Benediktssonar formans Sjálfstæðisflokksins og efnahags- og fjármálaráðherra, þar sem hann stendur í ræðustól og horfir haukfránum augum fram í salinn. Yfir myndina er skrifað: Okkar stefna snýst um að veðja á einstaklinginn. Og þá vaknar spurningin: Hvaða einstaklingur er þetta sem Bjarni vill veðja á? Ekki er Bjarni að veðja börn Það eru 365 þúsund einstaklingar á landinu og þar af eru 81.500 börn. Mér vitanlega hefur Sjálfstæðisflokkurinn aldrei stutt börn. Flokkur lagðist gegn barnabótum á sínum tíma og hefur notað öll tækifæri til að lækka þar og skerða. Flokkurinn er á móti gjaldfrjálsum skóla og tómstundum, stóð gegn uppbyggingu leikskóla og hefur aldrei varið hagsmuni barna á nokkurn hátt. Auk þess hafa börn ekki kosningarétt, svo Bjarni er örugglega ekki að fara að veðja á börnin. … og ekki aldraða Þá eru eftir 283.500 landsmenn sem ekki eru börn. Þar af eru 45.500 á eftirlaunaaldri, fólk sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur aldrei sinnt og lítur á sem byrði fremur en fullgilda borgara. Sjálfstæðisflokkurinn var á móti almannatryggingum fyrir níutíu árum og þar með almennum eftirlaunum. Flokkurinn hefur ætíð hafnað öllum tillögum til að bæta kjör aldraðra, bjó til og hefur alltaf stutt skerðingar á tekjum hópsins. Hann tefur eins mikið og hann getur uppbyggingu á þjónustu við aldraða og eftirlaunafólk, nema ef uppbyggingin skaffar verkefni fyrir byggingarverktaka sem eru í flokknum. En heimilishjálp, heimahjúkrun, dagvist og almenn þjónustu til að auka lífsgæði hópsins; Sjálfstæðisflokkurinn er á móti svoleiðis. Fyrir hverjar þingkosningar hefur Bjarni lofa þessum hópi bót og betrun, en eftir hverjar kosningar svíkur hann þessi loforð. Það má segja að það sé eitt af lögmálum íslenskra stjórnmála. Kannski metur Bjarni það svo að hópurinn glími almennt við alvarleg minnisglöp og því skipti engu hvað er sagt við eftirlaunafólk. Svo þótt Bjarni ætli enn og aftur að veðja á að hann komist upp með að svíkja loforð gagnvart eftirlaunafólki og öldruðum; þá er það ekki svo að hann eða Sjálfstæðisflokkurinn séu að fara að veðja á fólk á eftirlaunaaldri. Nær væri að segja að hann ætli að afskrifa það. … og enn síður öryrkja Þá eru eftir 238 þúsund landsmenn sem eru hvorki börn né fólk á eftirlaunaaldri. Af þeim eru um 18 þúsund öryrkjar og það er hópur sem Bjarni er örugglega ekki að fara að veðja á. Bjarni persónulega, og Sjálfstæðisflokkurinn almennt, er í opnu stríði við öryrkja, heldur því fram í ræðu og riti að öryrkjar séu byrði á samfélaginu og dragi undan viðspyrnu samfélagsins með svikum og prettum. Bjarni á því örugglega ekki við um öryrkja þegar hann segist ætla að veðja á einstaklinginn … og alls ekki atvinnulausa Þá eru eftir 220 þúsund landsmenn sem ekki eru börn, ekki eftirlaunafólk og ekki öryrkjar. Af þeim eru 17 þúsund atvinnulausir og Bjarni er sannarlega ekki að ávarpa þá einstaklinga með fínu myndinni af sér. Bjarni hefur hafnað því algjörlega að atvinnulaust fólk eigi að hafa í sig og á, þvertekið fyrir að hækka atvinnuleysisbætur svo atvinnulausir eigi fyrir mat úr mánuðinn, geti sótt sér heilbrigðisþjónustu eða greitt fyrir tómstundir barnanna sinna. Svo Bjarni ætlar ekki að veðja á þá einstaklinga sem eru atvinnulausir. Heldur betur ekki. … og ekki veðjar hann á námsfólk Þá eru eftir 203 þúsund landsmenn sem ekki eru börn, ekki eftirlaunafólk, ekki öryrkjar og ekki atvinnulaus. Af þeim eru 34 þúsund landsmanna við nám í framhaldsskólum, við iðnnám eða í háskóla. Bjarni og Sjálfstæðisflokkurinn hafa alla tíð verið andsnúnir stuðningi við námsfólk, viljað hækka vexti á námslán og skerða þau, staðið gegn uppbyggingu námsmannagarða, verið á móti stuðningi við barnafólk í námi og þar fram eftir götunum. Í raun er Sjálfstæðisflokkurinn á því að aðeins börn af betur settum heimilum eigi að stunda nám. Flokkurinn vill að börn af heimilum verkafólks verði sjálft verkafólk og vinni verkamannavinnu í fyrirtækjum hinna betur settu. Þetta er svona meira og minna menntastefna flokksins. Bjarni ætlar sér því örugglega ekki veðja á einstaklinga í námi. … og enn síður opinbera starfsmenn Þá eru eftir 169 þúsund landsmenn sem ekki eru börn, ekki eftirlaunafólk, ekki öryrkjar, ekki atvinnulaus og ekki í námi. Af hinum eru 37 þúsund opinberir starfsmenn og Bjarni er sannarlega ekki að fara að veðja á þá. Hann segir að opinberir starfsmenn sói fé á meðan þau sem vinna hjá fyrirtækjum fjölskyldu hans og vina búi til fé. Þó einkum eigendur þessara fyrirtækja. Bjarni trúir að það sé salt jarðar, fólkið sem getur allt gott af sér. Bjarni vill frekar að fólk sé atvinnulaust en að það vinni hjá hinu opinbera. Í hans huga er gott að fólk vinni hjá fyrirtækjum fjölskyldu hans og vina, honum finnst það skaðlaust að fólk gangi um atvinnulaust en hann telur það stórhættulegt og vont að fólk vinni hjá hinu opinbera. Bjarni er því örugglega ekki að fara að veðja á þá einstaklinga sem vinna hjá hinu opinbera. … og alls ekki félaga í Alþýðusambandinu Þá eru eftir 132 þúsund landsmenn sem ekki eru börn, ekki eftirlaunafólk, ekki öryrkjar, ekki atvinnulaus, ekki í námi og ekki opinbert starfsfólk. Af þeim eru 125 þúsund félagar í Alþýðusambandinu sem Bjarni og félagar er í virku stríði við. Hann og vinir hans telja ASÍ sinn helsta óvin og stærstu hindrunina á þeirri leið sem þeir vilja fara, í átt að alræði auðvaldsins. Sjálfstæðisflokkurinn varð til þegar stjórnmál snérust um andstæðurnar í samfélaginu; annars vegar launafólk sem lifði af að selja vinnu sína og hins vegar fyrirtækja- og fjármagnseigendur sem lifðu á auð sínum. Sjálfstæðisflokkurinn var alla tíð með síðartalda hópnum í liði, þótt hann reyndi að leyna því fyrstu áratugina. Undanfarið hefur flokkurinn hætt að fela með hverjum hann stendur, hann er stoltur af því að standa með auðvaldinu og hafa ekkert í stefnu sinni sem ekki á rætur sínar hjá Viðskiptaráði, Samtökum atvinnulífsins og öðrum hagsmunasamtökum hinna ríku og valdamiklu. Bjarni er því örugglega ekki að veðja á einstaklingana í Alþýðusambandinu. … og enn síður eigendur smáfyrirtækja Þá eru eftir sjö þúsund landsmenn sem ekki eru börn, ekki eftirlaunafólk, ekki öryrkjar, ekki atvinnulaus, ekki í námi, ekki opinbert starfsfólk og ekki í Alþýðusambandinu. Þetta er flest fólk sem á og rekur fyrirtæki. Af þeim eru um 80% einyrkjar og eigendur smáfyrirtækja sem Bjarni ætlar örugglega ekki að veðja á. Stefna hans og Sjálfstæðisflokksins er að styrkja allra auðugustu fjármagnseigendurna og allra stærstu eigendur allra stærstu fyrirtækjanna, sem geta ekki aukið auð sinn nema að sölsa undir sig rekstur, eignir og viðskiptavini hinna smáu. Af þessum sjö þúsund sem ekki falla undir þá hópa, sem hér hefur verið bent á að Bjarni geti ekki átt við, eru því um 5.600 sem reka smáfyrirtæki sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur aldrei stutt og ætlar aldrei að styðja. En einn er hópur sem Bjarni elskar Þá eru eftir um 1.400 einstaklingar sem Bjarni getur fræðilega ætlað að veðja á. Þetta eru 0,5% fullorðinna Íslendinga. Það er því ljóst að ég hef verið heldur rausnarlegur við Bjarna. Sú stefna sem hann rekur; nýfrjálshyggja sem gengur út á að minnka völd almennings en auka völd og auð hinna fáu ríku; hefur sýnt sig að þjóna fyrst og fremst 0,1% hinna ríkustu, sem á Íslandi eru um 285 manns. Og innan þessa hóps er 0,01 prósentið, sem í raun leggur línurnar og hefur auðgast allra mest á tíma nýfrjálshyggjunnar. Hópur hinna allra auðugustu er kannski 30 manns á Íslandi. Og þar sem sumt af þessu fólki er í sömu fjölskyldu þá mætti eiginlega umorða heitstrengingu Bjarna svo hún hljómi trúverðuglega: Okkar stefna snýst um að veðja á fjórtán auðugustu fjölskyldurnar. Við vinnum fyrir þær. Ekki ykkur. Höfundur er félagi í Sósíalistaflokknum. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Gunnar Smári Egilsson Skoðun: Kosningar 2021 Sósíalistaflokkurinn Mest lesið Halldór 29.03.2025 Halldór Hugtakastríðið mikla Sigmar Guðmundsson Skoðun Forsjárhyggja Sjálfstæðis- og Framsóknarfólks í Hafnarfirði í garð fólks með fötlun Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Falsfréttastjóri RÚV dýpkar holuna sína Einar Steingrímsson Skoðun Kristni og íslam: Samfélag sem hvílir á skilningi Skúli S. Ólafsson Skoðun Uppsagnarbréf til góða fólksins Daníel Freyr Jónsson Skoðun Ekki er allt sem sýnist Ólafur Helgi Marteinsson Skoðun Ákall um breytingar Gissur Freyr Gissurarson Skoðun Skóli án aðgreiningar: Hentar ýktasta mynd skólastefnunnar öllum börnum? Jóna Sigríður Valbergsdóttir Skoðun Hrynur sjávarútvegur? Stefán Ólafsson Skoðun Skoðun Skoðun Uppsagnarbréf til góða fólksins Daníel Freyr Jónsson skrifar Skoðun Kristni og íslam: Samfélag sem hvílir á skilningi Skúli S. Ólafsson skrifar Skoðun Hugtakastríðið mikla Sigmar Guðmundsson skrifar Skoðun Forsjárhyggja Sjálfstæðis- og Framsóknarfólks í Hafnarfirði í garð fólks með fötlun Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Ekki er allt sem sýnist Ólafur Helgi Marteinsson skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar: Hentar ýktasta mynd skólastefnunnar öllum börnum? Jóna Sigríður Valbergsdóttir skrifar Skoðun Vilji til að rjúfa kyrrstöðu í húsnæðiskreppunni Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Grænt ál frá Íslandi er mikilvægt fyrir sjálfstæða Evrópu Guðríður Eldey Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar barn óttast önnur börn Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Falsfréttastjóri RÚV dýpkar holuna sína Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Ákall um breytingar Gissur Freyr Gissurarson skrifar Skoðun Veit sem sagt Grímur betur? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig talar maður við tölvur og hafa vélar rökhugsun? Henning Arnór Úlfarsson skrifar Skoðun Laun kvenna og karla Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,Steinunn Bragadóttir skrifar Skoðun Verkin sem ríkisstjórnin verður dæmd af Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Open Letter to new HÍ Rector re Disability Support Hópur starfsfólks og nemenda við HÍ skrifar Skoðun Vanfjármögnun vísindanna Magnús Hallsson,Styrmir Hallsson skrifar Skoðun Kárhóll og Kína: Þegar vísindi verða pólitísk tól Davíð Michelsen skrifar Skoðun Mál Ásthildar Lóu Þórsdóttur – Hvernig manneskjur viljum við vera? Hulda Steingrímsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórn gegn fjölskyldusameiningum? Þorbjörg Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Lýðræðið deyr í myrkrinu Heiðar Örn Sigurfinnsson skrifar Skoðun Færni til framtíðar Álfheiður Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ofbeldi Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Lestu Gaza Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir skrifar Skoðun Ný fjármálaáætlun - tækifæri til að efna loforðin um bætt geðheilbrigði Sandra B. Franks skrifar Skoðun 10 ár og bull í lokin Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Opið bréf til atvinnuvegaráðherra: 48 daga, nei takk Gísli Gunnar Marteinsson skrifar Skoðun Á nú að opinbera það að ég veit í rauninni ekki neitt? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar Skoðun Háskóli Höfuðborgarinnar, ekki Íslands Arent Orri Claessen,Gunnar Ásgrímsson skrifar Skoðun Hrynur sjávarútvegur? Stefán Ólafsson skrifar Sjá meira
Forsjárhyggja Sjálfstæðis- og Framsóknarfólks í Hafnarfirði í garð fólks með fötlun Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun
Skóli án aðgreiningar: Hentar ýktasta mynd skólastefnunnar öllum börnum? Jóna Sigríður Valbergsdóttir Skoðun
Skoðun Forsjárhyggja Sjálfstæðis- og Framsóknarfólks í Hafnarfirði í garð fólks með fötlun Stefán Már Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Skóli án aðgreiningar: Hentar ýktasta mynd skólastefnunnar öllum börnum? Jóna Sigríður Valbergsdóttir skrifar
Skoðun Grænt ál frá Íslandi er mikilvægt fyrir sjálfstæða Evrópu Guðríður Eldey Arnardóttir skrifar
Skoðun Open Letter to new HÍ Rector re Disability Support Hópur starfsfólks og nemenda við HÍ skrifar
Skoðun Mál Ásthildar Lóu Þórsdóttur – Hvernig manneskjur viljum við vera? Hulda Steingrímsdóttir skrifar
Skoðun Ný fjármálaáætlun - tækifæri til að efna loforðin um bætt geðheilbrigði Sandra B. Franks skrifar
Forsjárhyggja Sjálfstæðis- og Framsóknarfólks í Hafnarfirði í garð fólks með fötlun Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun
Skóli án aðgreiningar: Hentar ýktasta mynd skólastefnunnar öllum börnum? Jóna Sigríður Valbergsdóttir Skoðun