Það er óhætt að segja að Íslandsmeistaratitlarnir hafi dreifst á keppendur á Íslandsmótinu í áhaldafimleikum sem fór fram í húsakynnum Ármanns í Laugabóli nú um helgina.
Nanna Guðmundsdóttir og Valgarð Reinhardsson urðu Íslandsmeistarar í fjölþraut á laugardaginn en í gær var síðan keppt var til úrslita á einstökum áhöldum. Efstu fimm keppendur á hverju áhaldi úr fjölþrautinni í gær unnu sér inn keppnisrétt í úrslitum.
Alls voru það tíu keppendur sem skiptu Íslandsmeistaratitlunum bróðurlega á milli sín. Nanna og Valgarð bættu við einum Íslandsmeistaratitli hvor en átta meistarar bættust síðan í hópinn.
Í karlaflokki varð Jónas Ingi Þórisson Íslandsmeistari á gólfi, Arnþór Daði Jónasson á bogahesti, Jón Sigurður Gunnarsson á hringjum, Martin Bjarni Guðmundsson á stökki, Valgarð Reinhardsson á tvíslá og Eyþór Örn Baldursson á svifrá.
Í kvennaflokki skiptust verðlaunin einnig jafnt á milli keppenda. Nanna Guðmundsdóttir, Íslandsmeistari í fjölþraut sigraði á gólfi. Guðrún Edda Min Harðardóttir sigraði á slá, Thelma Aðalsteinsdóttir á tvíslá og Hildur Maja Guðmundsdóttir á stökki en þetta er fyrsta mót Hildar Maju í fullorðinsflokki.
Í unglingaflokki karla varð Ágúst Ingi Davíðsson Íslandsmeistari á gólfi, bogahesti og hringjum, Sigurður Ari Stefánsson hreppti titilinn á stökki og á tvíslá og á svifrá varð Dagur Kári Ólafsson hlutskarpastur.
Ragnheiður Jenný Jóhannsdóttir átti mjög góðan dag í dag. Ragnheiður sigraði á stökki, slá og gólfi og Freyja Hannesdóttir, núverandi Íslandsmeistari kvenna í fjölþraut í unglingaflokki, tók titilinn á tvíslá.
Verðlaunahafar í karlaflokki á einstökum áhöldum á Íslandsmótinu í áhaldafimleikum:
- Gólfæfingar:
- 1. sæti: Jónas Ingi Þórisson, Gerpla
- 2. sæti: Valgarð Reinhardsson, Gerpla
- 3. sæti: Martin Bjarni Guðmundsson, Gerpla
- Bogahestur:
- 1. sæti: Arnþór Daði Jónasson, Gerpla
- 2. sæti: Valgarð Reinhardsson, Gerpla
- 3. sæti: Jónas Ingi Þórisson, Gerpla
- Hringir:
- 1. sæti: Jón Sigurður Gunnarsson, Ármann
- 2. sæti: Valgarð Reinhardsson, Gerpla
- 3. sæti: Jónas Ingi Þórisson, Gerpla
- Stökk:
- 1. sæti: Martin Bjarni Guðmundsson, Gerpla
- 2. sæti: Jónas Ingi Þórisson, Gerpla
- Tvíslá:
- 1. sæti: Valgarð Reinhardsson, Gerpla
- 2. sæti: Jónas Ingi Þórisson, Gerpla
- 3. sæti: Atli Snær Valgeirsson, Gerpla
- Svifrá:
- 1. sæti: Eyþór Örn Baldursson, Gerpla
- 2. sæti: Valgarð Reinhardsson, Gerpla
- 3. sæti: Jónas Ingi Þórisson, Gerpla
Úrslit í kvennaflokki á einstökum áhöldum á Íslandsmótinu í áhaldafimleikum:
- Stökk:
- 1. sæti: Hildur Maja Guðmundsdóttir, Gerpla
- 2. sæti: Sóley Guðmundsdóttir, Grótta
- 3. sæti: Birta Björg Alexandersdóttir, Björk
- Tvíslá:
- 1. sæti: Thelma Aðalsteinsdóttir, Gerpla
- 2. sæti: Nanna Guðmundsdóttir, Grótta
- 3. sæti: Guðrún Edda Min Harðardóttir, Björk
- Jafnvægislá:
- 1. sæti: Guðrún Edda Min Harðardóttir, Björk
- 2. sæti: Hildur Maja Guðmundsdóttir, Gerpla
- 3. sæti: Thelma Aðalsteinsdóttir, Gerpla
- Gólfæfingar:
- 1. sæti: Nanna Guðmundsdóttir, Grótta
- 2. sæti: Margrét Lea Kristinsdóttir, Björk
- 3. sæti: Guðrún Edda Min Harðardóttir, Björk