Andrej Babis, forsætisráðherra Tékklands, sagði í gær að erindrekarnir átján tengdust allir leyniþjónustum Rússlands og hefðu tvo sólarhringa til að yfirgefa landið. Hann sagði ríkisstjórn sína verða að bregðast við upplýsingum sem tengt hafi Rússa við sprenginguna nærri bænum Vrbetice.
Samhliða blaðamannafundi Babis lýsti lögreglan eftir þeim tveimur mönnum vegna sprengingarinnar og sagði þá hafa verið í Tékklandi á milli 11. október og 16. október 2014. Sama tíma og sprengingin varð. Fyrst hafi þeir verið í Prag og svo hafi þeir sést nærri vopnageymslunni, samkvæmt frétt BBC.
Národní centrála proti organizovanému zlo inu SKPV, ádá v souvislosti s prov ováním okolností záva né trestné innosti o pomoc p i pátrání po dvou osobách. https://t.co/SJ5Opg5gXD#policiepp pic.twitter.com/oACMrPYSbg
— Policie R (@PolicieCZ) April 17, 2021
BBC segir að meðal sönnunargagna Tékka sé tölvupóstur sem barst til Imex Group, fyrirtækisins sem rak vopnageymsluna, í aðdraganda sprengingarinnar. Sá póstur átti að vera frá Þjóðvarðliði Tadsíkistan og fjallaði um beiðni fyrir tvo menn til að skoða vopnageymsluna.
Mennirnir tveir voru sagðir heita Ruslan Tabarov, frá Tadsíkistan, og Nicolaj Popa, frá Moldóvíu. Myndirnar sem fylgdu tölvupóstinum voru þó af sömu mönnum og ferðuðust til Bretlands árið 2018 undir nöfnunum Ruslan Boshirov og Alexander Petrov.
Þeir hafa verið ákærðir fyrir að eitra fyrir rússneska njósnaranum Sergei Skripal og dóttir hans.
Þegar þeir flugu til Prag í október 2014 notuðust þeir við nöfnin Boshirov og Petrov en ekki nöfnin sem þeir notuðu til að fá að skoða vopnageymsluna. Þeir gistu í Prag í tvær nætur og bókuðu svo hótel í nokkrar nætur til viðbótar, skammt frá vopnageymslunni sem sprakk.
Í rauninni er talið að þeir heiti Anatolíj Tsjepiga og Alexander Mishkin og hafa þeir verið opinberaðir sem starfsmenn GRU, leyniþjónustu herafla Rússlands.
Mennirnir eru sagðir hafa tilheyrt sérstakri deild í GRU sem kallaðist Unit 29155 og sérfræðingar telja að hafi verið notuð til launmorða og skemmdarverka.
Sprengingin sem um ræðir varð þann 16. október 2014. Um 50 tonn af skotfærum sprungu og dóu tveir í sprengingunni. Þá varð önnur sprenging í vopnageymslu Tékklandi í desember það ár þegar um þrettán tonn af skotfærum sprungu.
Yfirvöld í Rússlandi hafa gefið út að stjórnarskrá landsins heimili ekki framsal rússneskra ríkisborgara. Þá kemur fram í frétt Reuters að rússneskir fjölmiðlar hafi eftir formanni utanríkismálanefndar efra þings Rússlands að ásakanir Tékka séu fáránlegar og að ríkisstjórn Rússlands ætti að svara fyrir sig.