Kane og De Bruyne í kapphlaupi við tímann Valur Páll Eiríksson skrifar 24. apríl 2021 11:46 Kevin De Bruyne þykir líklegri til að ná úrslitaleiknum en Harry Kane. Getty Images/Tottenham Hotspur Bæði Kevin De Bruyne og Sergio Agüero gætu verið með Manchester City er liðið mætir Tottenham Hotspur í úrslitaleik enska deildabikarsins á morgun. Þá vonast Tottenham-menn til að fyrirliði liðsins Harry Kane verði með.
De Bruyne fór meiddur af velli í 1-0 tapi City fyrir Chelsea í undanúrslitum FA-bikarsins síðustu helgi og missti af 2-1 sigri liðsins á Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni í miðri viku. Hann var þó með á æfingu í gær og vonast Pep Guardiola, stjóri City, að hann verði heill heilsu á morgun. Sergio Agüero var einnig með á æfingu í gær sem er góðs viti fyrir City-menn, sem eiga annan stórleik, við Paris Saint-Germain, í Meistaradeildinni á miðvikudag. Harry Kane, markahæsti og stoðsendingahæsti leikmaður Tottenham á leiktíðinni, meiddist á ökkla gegn Everton síðustu helgi og missti af 2-1 sigri á Southampton á miðvikudag. Samkvæmt breskum miðlum er hann tæpur fyrir úrslitaleik morgundagsins þar sem hver klukkutími mun skipta máli. Manchester City hefur tök á því að vinna deildabikarinn fjórða árið í röð á morgun en Tottenham freistar þess að vinna sinn fyrsta titil frá árinu 2008, þegar liðið vann sömu keppni. Leikur liðanna hefst klukkan 15:30 á morgun og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 2.
Enski boltinn Mest lesið Kveðst viss um eftirsjá Gylfa: „Hefðum unnið mótið í fyrra með hann“ Íslenski boltinn „Þær eru skíthræddar við okkur í lokin“ Fótbolti Róbert hættir með Gróttu eftir tímabilið Handbolti „Eins gott að þeir fari að fokking semja“ Körfubolti Ótrúleg markasúpa í Katalóníu Fótbolti Uppgjörið: Frakkland - Ísland 3-2 | Frakkar númeri of stórir Fótbolti Aþena vann loksins leik Körfubolti Inter í undanúrslit Fótbolti „Síðasti þriðjungur var erfiður fyrir okkur“ Fótbolti Chelsea skrapaði botninn með Southampton Enski boltinn Fleiri fréttir Chelsea skrapaði botninn með Southampton Segir að Maresca verði rekinn ef næstu tveir leikir vinnast ekki Þolinmæðin á Højlund nánast á þrotum Carragher kallaði Ferdinand trúð United hættir að bjóða upp á frían hádegismat Endurkomukóngarnir í Leeds með fimm stiga forskot á toppnum Aftur hópuppsögn hjá Man. Utd Sturridge vildi að Guardiola setti Haaland inn á í hálfleik Metin sex sem Salah setti í gær Fyrsta barnabarn Cantona heitir Cesar „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ „Spiluðum mjög vel í dag“ „Við þurfum annan titil“ Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Skoruðu fjögur mörk á ellefu mínútna kafla Haaland ekki í hópnum á móti Liverpool Vann Arsenal og tók síðan bara lestina heim Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah „Eigum skilið að finna til“ Asensio hetjan í endurkomu Villa Öruggur sigur Spurs og Wolves vann óvænt Bitlausu liði Arsenal mistókst að minnka forskot Liverpool Moyes: Greinilegt peysutog en við áttum að vera komnir í 3-0 Amorim: Við þurfum að lifa þetta tímabil af Hætti við að dæma víti og United slapp með jafntefli Pulis skellihló er hann gerði grín að íslensku eigendunum Tottenham vill ekki láta kalla sig Tottenham Brentford bætti við algjöra martröð Leicester Ratcliffe þekkti ekki fyrirliða kvennaliðsins Sjá meira