Herdeildum verður fækkað um allt að þriðjung og þær stækkaðar. Þannig á að gera herdeildirnar afkastameiri og gera þeim kleift að takast á við sambærilegar herdeildir annarra ríkja.
Breytingarnar eru liður í heildaráherslubreytingu herafla Bandaríkjanna sem snýr að því að draga úr áherslu á stríðið gegn hryðjuverkum og undirbúa heraflann betur fyrir möguleg átök við ríki eins og Kína og Rússland.
Einnig stendur til að breyta inntökuskilyrðum í Selina með því markmiði að laða að betri leiðtoga vegna nokkurra hneykslismála sem snúa að stríðsglæpum, morðum, kynferðisbrotum og fíkniefnanotkun.
Sjá einnig: Óttuðust hefndaraðgerðir eftir að þeir sökuðu yfirmann þeirra um stríðsglæpi
Þetta segir aðmírállinn H. Wyman Howard þriðji í viðtali við AP fréttaveituna en hann stýrir Selunum. Viðurnefnið Selir má rekja til þess að formlegt nafn herdeildanna er United States Navy Sea, Air, and Land Teams. Það hefur verið skammstafað sem SEAL, sem þýðir selur á íslensku.
Selirnir nutu gífurlegrar frægðar í kjölfar þess að meðlimir sveitanna fóru til Pakistan og felldu Osama bin Laden, leiðtoga al-Qaeda, árið 2011.
Leiðtogar í varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna telja að stríðið gegn hryðjuverkum, sem staðið hefur yfir í tvo áratugi, hafi kostað herafla Bandaríkjanna mikið og Bandaríkin hafi misst forskot sitt gegn Kína og Rússlandi.
Howard segir að selirnir hafi þó lært töluvert á síðustu áratugum og nú þurfi að finna leiðir til að nýta þá þekkingu í kappi við önnur ríki. Hann segir að geta Selanna til að gera tölvuárásir, beita drónum og öðrum leiðum til að öðlast upplýsingar og sigra óvini sína verði aukin.
Þá stendur einnig til að aðlaga Selina aftur betur að starfi sjóhers Bandaríkjanna.