Berglind hafði betur í Íslendingaslag - Fimmta tap Guðrúnar í röð Valur Páll Eiríksson skrifar 22. maí 2021 16:00 Fjögur Íslendingalið voru í eldlínunni í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Þrír leikir fóru fram.
Guðrún Arnardóttir var að venju í byrjunarliði Djurgården sem þurfti að sætta sig við svekkjandi tap fyrir Hammarby. 1-1 var þar eftir aðeins átta mínútna leik eftir tvö mörk á tveimur mínútum. Hammarby náði forystunni snemma í síðari hálfleik, 2-1, en hin bandaríska Hayley Dowd jafnaði stundarfjórðungi fyrir leikslok. Emma Jansson skoraði hins vegar það sem reyndist sigurmark Hammarby á 82. mínútu. Djurgården er því með þrjú stig eftir sex leiki, og hefur tapað hverjum einasta leik eftir sigur í þeim fyrsta. Liðið er með þrjú stig í fallsæti, með lakari markatölu en Piteå sem er stigi ofar. Berglind Rós Ágústsdóttir byrjaði þá í miðverðinum hjá Örebrö sem vann 4-1 sigur á Växsjö í Íslendingaslag. Andrea Mist Pálsdóttir spilaði fyrsta klukkutímann fyrir síðarnefnda liðið. Með sigrinum fer Örebrö í 5. sætið með 10 stig en Växsjö er aðeins með eitt stig á botni deildarinnar. Häcken vann þá 3-0 sigur á Eskiltuna United og er liðið með 13 stig í öðru sæti. Efst er Rosengård, lið Glódísar Perlu Viggósdóttur, með 15 stig en liðið mætir Piteå á morgun. Kristianstad undir stjórn Elísabetar Gunnarsdóttur, með Sif Atladóttur og Sveindísi Jane Jónsdóttur innanborðs, er þá með 11 stig í þriðja sætinu og getur farið upp fyrir Häcken með sigri á AIK á morgun.
Sænski boltinn Mest lesið Frederik Schram fundinn Íslenski boltinn Fékk sleggju í höfuðið og var ljónheppinn að lifa af Sport Tilbúinn að gefa nýrun sín en ekki að leigja bílaleigubíl Enski boltinn Alfreð reiður út í leikmenn sína Handbolti „Helmingurinn af liðinu var veikur“ Körfubolti Geta unnið glænýjan bíl í Öskjuhlíðinni Sport Lést á leiðinni á æfingu Sport Svona er nýja landsliðstreyja stelpnanna fyrir EM í sumar Fótbolti Allt frágengið og Alonso fær þriggja ára samning hjá Real Madrid Fótbolti Leik KR og ÍBV seinkað vegna færðar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Guðni Eiríksson: Markmannstaðan á Íslandi er ekki nógu góð Arteta varar Arsenal fólk við: Erfiðasta staðan að fylla Nýliðarnir sóttu þrjú stig á heimavöll hamingjunnar Uppgjör: FH-Stjarnan 2-1 | FH-konur áfram á flugi Fleiri sæti í boði fyrir stelpurnar okkar á HM 2031 Arne Slot vonsvikinn með Trent Alexander-Arnold Svona er nýja landsliðstreyja stelpnanna fyrir EM í sumar Mac Allister besti leikmaðurinn í fyrsta sinn Salah valinn bestur af blaðamönnum Hlakkar til að mæta „fótboltapabba“ sínum í úrslitaleiknum Leik KR og ÍBV seinkað vegna færðar Fótboltaparið eignaðist son og skírði hann Jagger Sex ensk lið í Meistaradeild og tíu gætu náð Evrópusæti Sjáðu mörkin þegar United og Spurs gulltryggðu sig í úrslitaleikinn Frederik Schram fundinn Flestir treysta sér til þess að spila í Grindavík Allt frágengið og Alonso fær þriggja ára samning hjá Real Madrid Tilbúinn að gefa nýrun sín en ekki að leigja bílaleigubíl „Hverjum er ekki sama þó við séum í veseni í deildinni“ „Liðið ætti að vera betra en það er en við erum að reyna“ Albert og félagar úr leik eftir stórleik Antony Sheffield United með gott forskot í umspili Championship Manchester United spilar til úrslita í Evrópudeildinni Uppgjörið: FHL-Þór/KA 2-5 | Sandra María opnaði markareikninginn með þrennu Uppgjörið: Valur-Þróttur 1-3 | Þróttur fylgir Blikum eins og skugginn Chelsea örugglega í úrslitaleikinn Uppgjörið: Tindastóll-Breiðablik 1-5 | Berglind aftur í stuði á Króknum Flugeldar sprengdir við hótel Tottenham í nótt Kerfið hrundi og margir misstu af miða á leik hjá sveinum Freys Enrique léttur eftir leik: „Við erum bændadeild“ Sjá meira