Í myndbandinu sést fólk með grímur labba inn í myndver, setjast niður og byrja að lýsa líkamlegum einkennum.
Í fyrstu virðist sem um einkenni COVID-19 sé að ræða en þegar líður á myndbandið er ljóst að um er að ræða nákvæmlega sömu einkenni og má heimfæra yfir á afleiðingar þess að hafa verið beitt ofbeldi.
„Markmiðið með að fá svona fjölbreyttan hóp til að taka þátt í myndbandinu er að sýna þann fjölbreytileika sem þolendur kynbundins ofbeldis endurspegla. Við erum gríðarlega þakklát þátttakendum sem gáfu vinnu sína,“ segir Stella Samúelsdóttir, framkvæmdastýra UN Women á Íslandi.
Þessir þjóðþekktu einstaklingar sem fram koma í myndbandinu taka þátt í nafni allra þolenda – þetta er ekki þeirra eigin frásagnir.
UN Women á Íslandi hefur vakið athygli almennings undanfarin 31 ár á þeim heimsfaraldri sem kynbundið ofbeldi er og fjallað um ofbeldi gegn konum og stúlkum sem útbreiddasta mannréttindabrot heims.
Vissir þú að?
·600 milljónir kvenna búa í landi þar sem heimilisofbeldi er ekki refsivert
·243 milljónir kvenna 15-49 ára voru beittar ofbeldi af nánum maka árið 2020.
·Fyrir hverja þrjá mánuði í útgöngubanni bætast fimmtán milljónir stúlkna og kvenna í hóp þolenda.
·Það sem af er ári 2021 hefur orðið 23% aukning á tilkynningum um heimilisofbeldi á Íslandi samanborið við meðaltal síðustu þriggja ára
·Á þessu ári er áætlað að yfir fjórar milljónir kvenna og stúlkna muni bætast í hóp þeirra sem eiga í hættu á að vera limlestar á kynfærum sínum