Maðurinn, sem býr í Jiangsu-héraði og greindist í síðustu viku, hefur náð sér og verður útskrifaður á næstunni. Hann var upphaflega lagður inn á spítala 28. apríl síðastliðinn.
Afbrigði fuglaflensunnar eru mörg og það gerist endrum og eins að fólk sem vinnur með fiðurfénað smitist. Að sögn kínverskra heilbrigðisyfirvalda virðist það hafa gerst í þessu tilviki.
Þau sögðu hættuna á mikilli útbreiðslu afar litla en engin önnur tilfelli fundust við smitrakningu. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin sagði í samtali við Reuters að ekkert benti til þess að umrætt afbrigði hefði smitast manna á milli.
Afbrigðið H5N8 er nú útbreitt víða í heiminum og í febrúar tilkynntu stjórnvöld í Rússlandi um fyrsta tilvikið þar sem það hefði greinst í manni. Fáir hafa greinst með fuglaflensu frá því að 300 létust af völdum afbrigðisins H7N9 árin 2016 og 2017.