Skoðun

Pétri svarað

Daði Már Kristófersson skrifar

Pétur Pálsson skrifar aðra grein hér á Vísi þar sem hann gerir athugasemdir við greinar mínar um veiðigjöld (hér og hér).

Glögglega sést á skrifum okkar Péturs að við eru ekki sammála um hvort opinber skráning á verði fisks sé rétt eða ekki. Í fyrri grein minni lýsi ég minni nálgun. Hann lýsir þeirri sem notuð er hér. Ég læt lesendum eftir að dæma hvor leiðin þeim þykir betur endurspegla verðmæti fisks.

Hinn punkturinn snýr að því hvort gjaldtaka með sölu á hluta kvótans sé skynsamleg leið til þess að innheimta veiðigjald. Ljóst er að miklu máli skiptir hvernig að slíku er staðið. Arðbær sjávarútvegur krefst fyrirsjáanleika. Sala á kvóta þyrfti því að vera til langs tíma ef ekki ætti að skerða hvata til fjárfestinga í greininni. Reynsla Færeyinga er þar t.d. víti til varnaðar. Þar var fyrst og fremst selt til árs í senn. Viðreisn hefur á hinn bóginn stutt hugmyndir að nýtingarsamningum til lengri tíma, þar sem einingis brot þessara heimilda yrði selt á hverju ári. Nýtingarsamningar þessir yrðu einkaréttarlegs eðlis, og þar með varðir af eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar. Kostir þessarar lausnar er óumdeilanlega sanngjarnt veiðigjald og að pólitískri óvissu um framtíð kvótakerfisins yrði eytt fyrir útgerðina.

Ég hnýt um eitt atriði í röksemdafærslu Péturs. Hann segir: „Þrátt fyrir ofangreint leggur Daði til að rétturinn til að veiða og veiðigjöldin sjálf ákvarðist á uppboðum þar sem afleiðingin yrði enn verri en aðskilnaður veiða og vinnslu sem við erum þó sammála um að gefi okkur forskot á þá sem ekki vinna þannig.“ Hvernig má það vera að sala ríkisins á aflahlutdeild setji alla útgerð í uppnám? Hafa ekki útgerðaraðilar verið að selja hverjir öðrum aflahlutdeild undanfarin 30 ár? Hvað er svona eitrað við að kaupa af ríkinu? Ríkið selur alskyns eignir daglega. Er það almenn reynsla þeirra sem kaupa þær eignir að þeir séu hlunnfarnir eða að kaupin séu ósanngjörn?

Ég þakka síðan Pétri fyrir boðið í kaffi. Það á ég eftir að þiggja.

Höfundur er varaformaður Viðreisnar og prófessor í auðlindahagfræði við HÍ.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×