Vieira að snúa aftur í ensku úrvalsdeildina Sindri Sverrisson skrifar 29. júní 2021 11:50 Patrick Vieira er að taka við Crystal Palace. EPA-EFE/Sebastien Nogier Patrick Vieira verður næsti knattspyrnustjóri Crystal Palace samkvæmt heimildum miðla á borð við The Athletic og Sky Sports.
Vieira er ekki búinn að skrifa undir samning hjá Palace en samkomulag er í höfn um að þessi 45 ára gamli Frakki taki við enska úrvalsdeildarliðinu. Vieira er reyndar þriðji knattspyrnustjórinn sem Palace nær samkomulagi við á síðustu þremur vikum, samkvæmt Sky Sports, en nú er búist við því að samningar verði undirritaðir. EXCLUSIVE: Crystal Palace set to appoint Patrick Vieira as manager. Agreement in principle reached but not signed yet. Work permit process for 45yo former Nice boss & Arsenal Invincible under way. Confirmation expected in due course @TheAthleticUK #CPFC https://t.co/S8PUBv1PIA— David Ornstein (@David_Ornstein) June 29, 2021 Stjórn Palace mun hafa verið að vonast eftir því að Lucien Favre, sem síðast stýrði Dortmund en hætti með liðið í fyrra, myndi snúast hugur og taka við liðinu. Úr því að það gekk ekki upp var leitað til Vieira. Leikmenn Palace snúa aftur til æfinga á nýju undirbúningstímabili á mánudaginn. Þá ætti Vieira að vera tekinn til starfa. Vieira, sem lék yfir 100 landsleiki fyrir Frakkland, þekkir vel til í Lundúnum eftir að hafa leikið með Arsenal stærstan hluta síns ferils. Sem knattspyrnustjóri hefur hann stýrt New York City FC árin 2016-2018 og svo Nice í Frakklandi í tvö ár. Roy Hodgson var síðast stjóri Palace og hann stýrði liðinu til 14. sætis á síðustu leiktíð áður en samningur hans við félagið rann út.
Enski boltinn Mest lesið Enginn ákærður vegna andláts Adam Johnson Sport Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 105-104 | Lygilegar lokamínútur Körfubolti Arnór Borg í Vestra og Fram fann markmann Íslenski boltinn Sigtryggur Arnar eignaðist strák rétt fyrir stórleik kvöldsins Körfubolti „Þetta er úrslitakeppnin og hlutir gerast“ Körfubolti Víkingur fær leikmann úr dönsku B-deildinni Íslenski boltinn Valur í kjörstöðu gegn ÍR Handbolti Mark snemma leiks gerði gæfumuninn Fótbolti Hnefarnir látnir tala í Umhyggjuhöllinni Körfubolti Uppgjörið: Haukar - Fram 25-24 | Orkufrekur eltingaleikur Handbolti Fleiri fréttir Leeds sló eigið stigamet Villa mótmælir fyrirhugaðri breytingu Vilja úrslitaleik snemma vegna Eurovision Brómansinn í hæstu hæðum: Lét fólkið syngja til heiðurs Klopp Willum skoraði og lagði upp í stórsigri Birmingham City City í úrslit þriðja árið í röð Englandsmeistaratitillinn tryggður með stæl Höjlund bjargaði United i blálokin á móti tíu mönnum Bournemouth Fjögur lið gætu staðið heiðursvörð fyrir Liverpool Tímabilið gæti verið búið hjá Marcus Rashford Jón Daði skoraði og Victor vann Íslendingaslaginn Newcastle felldi Ipswich og komst upp í þriðja sætið Chelsea upp í fjórða sætið Evra vill berjast við Suárez í búrinu: Hann má meira að segja bíta mig „Vilja allir spila fyrir Man United“ Kidd kominn í eigendahóp Everton Leicester kveður „geitina“ sem félagið sótti í utandeildina Snýr aftur eftir lungnabólguna Liverpool getur tryggt sér titilinn á sunnudaginn Fór út í dulargervi eftir að Barton byrjaði að bauna á hana Jafnt á Emirates og Liverpool þarf að bíða Arteta ætlar ekki að hvíla Saka fyrir Meistaradeildina Sagan segir að Arsenal vinni Meistaradeildina Rekstur Chelsea: Eins og að tapa sextíu milljónum á dag í tíu ár Velta því fyrir sér hvort níska Liverpool komi í veg fyrir að Nunez spili Klásúlan virkjuð en enn óvíst hvort Chelsea kaupi Sancho Dramatík í Manchester United vill fá Cunha Kom þriðja liðinu upp í ensku úrvalsdeildina í fyrstu tilraun Leið eins og BBC vildi losna við hann úr Match of the Day Sjá meira